Kjalarvogur hagnaðist um 63 milljónir króna 28. ágúst 2006 17:18
Kjalarvogur ehf., dótturfélag Húsasmiðjunnar hf., skilaði 63 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæp tvöföldun á milli ára en á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 35 milljónir króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að rekstrartekjur Kjalarvogs hafi numið rúmum einum milljarði króna á tímabilinu. Vörunotkun nam 638 milljónum króna og annar rekstrarkostnaður 313 milljónum króna. Enginn starfsmaður starfaði hjá félaginu á tímabilinu en Húsasmiðjan hf. sá um daglegan rekstur. Heildareignir Kjalarvogs ehf. voru bókfærðar 619 milljónir króna í lok júní. Heildarskuldir voru um 403 milljónir króna á sama tíma og þar af námu langtímaskuldir um 184 milljónum króna. Þá nam eigið fé Kjalarvogs ehf. 216 milljónum króna í júnílok og var eiginfjárhlutfall 34,9 prósent. Í tilkynningunni segir að tilgangur félagsins sé innflutningur, heildsala og smásala á neytenda- og iðnaðarvörum, ásamt annarri starfsemi, sem af því leiði. Útlit sé fyrir áframhaldandi aukningu eftirspurnar og markaðsstaða félagsins sé ágæt. Áætlanir eru um endurnýjun og fjölgun útsölustaða á næstunni til að mæta þessari auknu eftirspurn, að því er segir í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðskipti innlent Skipti í brúnni hjá Indó Viðskipti innlent Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Viðskipti innlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Viðar nýr sölustjóri Wisefish Viðskipti innlent Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Sjá meira