Ofbeldi gegn börnum oft hulið og samþykkt 12. október 2006 16:39 MYND/AP
Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel samþykkt í samfélaginu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi samtakanna í gær. Um er að ræða fyrstu heildstæðu greininguna á ofbeldi gegn börnum og segir í skýrslunni að það birtist meðal annars í kynferðisofbeldi, vanrækslu, pyndingum og vinnuþrælkun og skaðlegum hefðum eins og umskurði kvenna. Þar segir enn fremur að ríki beri ábyrgð á því að banna allt ofbeldi gegn börnum og veita þurfi fé til áætlana og verkefna til að komast að rót vandans. Minnt er á að ofbeldi sé hluti af daglegu lífi sumra barna en erfitt sé að gera sér grein fyrir umfangi vandans þar sem ofbeldið sé oft falið. Þó hafi Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áætlað að að 53 þúsund börn undir sautján ára aldri hafi verið myrt árið 2002 og samkvæmt Alþjóðavinnumálastofnuninni er áætlað að 5,7 milljónir barna hafi verið þvinguð til vinnu, 1,8 milljónir barna hafi verið þvinguð til vændis eða til starfa í klámiðnaðinum og 1,2 milljónir barna hafi orðið fórnarlömb mansals árið 2000. UNICEF á Íslandi og Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna skýrslu Sameinuðu þjóðanna og segjast í tilkynningu vonast til þess að hún verði til þess að draga úr ofbeldi gegn börnum hvar sem það kann að finnast.
Erlent Fréttir Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira