Basic Instinct 2 efst á blaði 23. janúar 2007 09:30 Stone hefur verið tilnefnd sem versta leikkonan fyrir hlutverk sitt í Basic Instinct 2.
Kvikmyndirnar Basic Instinct 2 og Little Man hafa verið tilnefndar til sjö Razzie-verðlauna, sem verða afhent hinn 24. febrúar, degi á undan óskarsverðlaununum. Verðlaununum er ætlað að endurspegla það versta sem kvikmyndaborgin Hollywood bauð upp á á síðasta ári. Ævintýramyndin Bloodrayne hlaut sex tilnefningar, spennumyndin The Wicker Man fimm og Lady in the Water eftir M. Night Shyamalan hlaut fjórar. Tilnefndar sem verstu leikkonurnar voru Sharon Stone fyrir Basic Instinct 2, Lindsay Lohan fyrir Just My Luck, Kristanna Loken fyrir Bloodrayne, systurnar Hilary og Haylie Duff fyrir Material Girls og Jessica Simpson fyrir Employee of the Month. Stone hefur áður hlotið tvenn Razzie-verðlaun, fyrir The Specialist og Intersection. Bræðurnir Shawn og Marlon Wayans voru tilnefndir sem verstu leikararnir fyrir Little Man, Rob Schneider fyrir Benchwarmers, Nicolas Cage fyrir Wicker Man, Larry the Cable Guy fyrir Larry the Cable Guy: Health Inspector og Tim Allen fyrir hlutverk sín í myndunum The Santa Clause 3, The Shaggy Dog og Zoom. Athygli vakti að Sylvester Stallone, sem hefur hlotið þrjátíu Razzie-tilnefningar og tíu verðlaun, var ekki tilnefndur í þetta sinn fyrir myndina Rocky Balboa. „Í byrjun ársins hefðirðu ekki getað sannfært mig um að hún myndi ekki keppa um Razzie-verðlaunin,“ sagði John Wilson, upphafsmaður Razzie, um Rocky Balboa. „Mig langar að segja það opinberlega að Stallone bjó til góða mynd.“
Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein