Lært af reynslunni 27. febrúar 2007 00:01 Stöku dýrlingur mun eiga svo viturt hjarta að vera laus við ranghugmyndir. Þær eiga hinsvegar ekki bara heima í huga vændiskaupandi kalla sem trúa því að konan vilji þá líka borgunarlaust, eða hjá þeim sjúku ófétum sem segja að barnið hafi átt frumkvæðið. Nei, margar ranghugmyndir eru hversdagslegar eða jafnvel hagnýtar og geta snúist um dálitla staðbundna galla. Eftir barnsburðina þrjá hefði ég átt að sjá glöggt á vigtinni að enn sátu sem fastast óhóflegar viðbætur. Í speglinum var hinsvegar þvengmjó skutla, rosalega hissa á að komast ekki í neitt nema joggingbuxur. Þessi holdafarslega ranghugmynd var sennilega skemmtileg hliðarverkun af oxitósíni, holl fyrir sjálfstraustið og alveg öfug við þá sem lætur ungar stúlkur svelta sig veikar. Seinna verð ég kannski ein af þeim öldruðu skvísum sem fylgir unglingatískunni út í hörgul. Spóka mig í minipilsi með tattú, alveg handviss um kynþokkann. Tilvist margra ranghugmynda orsaka þó vandamál og verra er ef margir aðhyllast sömu villuna. Í gegnum tíðina hafa þær verstu sérstaklega bitnað á börnum. Áður var hér til dæmis aðallega litið á börn sem ódýrt vinnuafl. Einkum voru ómagar útsettir fyrir illri meðferð svo sem kunnugt er, fáum datt í hug að þeir þyrftu að menntast, bindast tilfinningaböndum eða borða úr öllum fæðuflokkum. Um miðbik síðustu aldar var í tísku meðal uppeldisfrömuða ungbarna að ekkert væri verra fyrir þau en sífellt kjass. Brjóstmylkingana ætti aldrei að taka upp nema á fjögurra klukkustunda fresti og þá aðeins til að fóðra, annars yrðu þeir bara frekir. Fyrir svona fimm árum voru gæðastundir aðalmálið, litlu skipti hversu mikið fjölskyldan var saman en mikilvægast að nýta hálftímann sem best. Nú hefur uppgötvast að þetta var herfilegur misskilningur: lengd samverunnar er aðalatriðið og það er í lagi að halda ekki skothelda skemmtidagskrá. Eins upplýst og við viljum vera skrifast jafnóðum í okkar svörtu bók eins og þeirra kynslóða sem gengnar eru og við gagnrýnum - oft með réttu. Spurningin er bara hverjar af hugmyndum nútímans um uppeldi munu standast tímans tönn og á hverjar verður litið sem allsherjar ranghugmyndir? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þórhildur Elín Elínardóttir Mest lesið Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við? Helgi Áss Grétarsson Skoðun Kann Jón Steindór ekki að reikna? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Í lífshættu eftir ofbeldi Jokka G Birnudóttir Skoðun Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi Ingvar Stefánsson Skoðun Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni Auður Kjartansdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir Skoðun Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Öfgar á Íslandi Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Raddir fanga Helgi Gunnlaugsson Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun