Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi meiðyrðamál Helga Rafns Brynjarssonar, sem áður var sakaður um að drepa hundinn Lúkas, til sýslumannsins á Akureyri í ágúst.
Á skrifstofu sýslumanns er meiðyrðamálið ekki talið hluti af því Lúkasarmáli sem rannsakað var fyrir norðan og snerist um illa meðferð á dýri.
„Þetta hefur verið að vefjast fyrir okkur,“ segir Björn Arnviðarson, sýslumaður á Akureyri. „Við erum að velta því fyrir okkur hvort þetta mál eigi yfirleitt heima hjá okkur.“
Málið er flókið því brotin í hinu nýja Lúkasarmáli, hótanir og svívirðingar í garð Helga Rafns, voru framin á netinu.
Sakamál eru yfirleitt rannsökuð í svokölluðu brotavarnarþingi, í þeirri sýslu þar sem brotið var framið.
Í þessu tilfelli er enginn slíkur áþreifanlegur staður fyrir hendi.
Einnig má rannsaka mál í heimilisvarnarþingi, það er þar sem hinn brotlegi á lögheimili.
Ummæli netverja í garð Helga Rafns komu úr mörgum sýslum. Spurður segir Björn því allt eins hugsanlegt að málið verði rannsakað af öllum sýslumönnum landsins.
Fordæmi fyrir viðlíka rannsókn finnast ekki og í ofanálag má efast um hver beri ábyrgð á meiðandi færslu. Það gæti verið sá sem skrifar ummælin, sá sem er skráður fyrir IP-númeri tölvunnar sem var notuð, sá sem heldur úti heimasíðunni sem birtir ummælin, eða sá sem hýsir heimasíðuna.
Hjá ákærudeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var fátt um svör. „Brotavettvangur er á Akureyri,“ hafði símastúlka þó eftir fulltrúum þar.
Erlendur Þór Gunnarsson, lögmaður Helga Rafns, vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu, en furðar sig á því að það sé statt á Akureyri. Brotin hafi farið fram á veraldarvefnum.
