Innlent

Lög­reglan á Austur­landi tók þátt í stórri al­þjóð­legri lögregluaðgerð

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hlutverk lögreglunnar á Austurlandi var að fylgjast með farþegum á ferjunni til og frá Seyðisfirði.
Hlutverk lögreglunnar á Austurlandi var að fylgjast með farþegum á ferjunni til og frá Seyðisfirði. Vísir/Vilhelm

Lögreglan í Svíþjóð leiddi alþjóðlega lögregluaðgerð þar sem 57 voru handteknir í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi. Lögreglan á Austurlandi kom að aðgerðinni.

Handtökurnar voru í tengslum við þjófnað, smygl og annars konar glæpastarfsemi en engar þeirra fóru fram hér á landi. Hlutverk lögreglunnar á Austurlandi fólst í því að fylgjast með ferjusiglingum til og frá Seyðisfirði. Ríkisútvarpið greinir frá.

Flestir hinna handteknu voru teknir fastir í Svíþjóð og þar á eftir í Danmörku. Auk lögreglunnar á Austurlandi tóku lögregluembætti í Eystrasaltsríkjunum og Noregi einnig þátt í aðgerðunum. Lagt var hald á mikið þýfi, meðal annars bíla, báta, hjól og úr.

Fram kemur að lögregla hafi kannað um tuttugu þúsund einstaklinga og fimmtán þúsund ökutæki í tíu löndum á meðan aðgerðunum stóð sem var í nokkra daga. Mest var fylgst með ferjum en einnig öðrum landamærastöðvum við brýr, vegi og flugvelli.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lögreglan á Íslandi tók þátt í slíkri aðgerð. Samstarfið sé hluti af verkefni sem Europol leiði til að hafa uppi á alþjóðlegum glæpahópum.

„Þetta er sameiginlegt vandamál alls staðar í Evrópu, þessir skipulögðu hópar. Þetta hefur gefið mjög góðan árangur að sameina krafta okkar. Við erum með mismunandi gagnagrunna, sem við getum þá leitað í þegar við sameinumst og þá aukast líkurnar á því að við náum að hafa uppi á þessum hópum,“ segir Óskar Þór Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á Austurlandi í samtali við Ríkisútvarpið.

Hann segir engan hafa verið handteknir hér á landi og ekkert þýfi haldlagt hér heldur. Það hafi þó áður gerst í sambærilegum aðgerðum. Einhverjir hinna handteknu séu góðkunnir lögreglunni á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×