Ræðir ekki við fjölmiðla fyrst um sinn 14. janúar 2007 13:15
Boðað var til blaðamannafunda á tveimur stöðum í Missouri í Bandaríkjunum í gærkvöldi til að fagna björgun tveggja unglingsdrengja úr klóm mannræningja. Báðum heilsast vel. Shawn Hornbeck hafði verið saknað í fjögur og háflt ár en William Ownby, sem kallaður er Ben, hvarf á mánudaginn fyrir tæpri viku. Það var tilviljun ein sem réði því að lögregla fann þá í fyrradag. Lögreglumenn ráku augun í sendibíl á fimmtudagskvöldið sem passaði við lýsingu á bíl sem fór um þar sem Ownby var rænt. Heimild fékkst til leitar á heimili MIchaels Devlins, eiganda bílsins, og þar voru drengirnir, að því er virtist við góða heilsu. Devlin hefur verið ákærður fyrir mannrán og búist við fleiri ákærum. Móðir Bens segist ekki hafa augun af honum nú og þakkar lögreglu björgunina. Móðir Shawns sagði son sinn ekki vilja tjá sig sem stendur um dvölina hjá Devlin en það ætli hann að gera þegar hann treysti sér til þess, fyrr tali hann ekki við fjölmiðla. Fjölskyldan þurfi fyrst að takast á við atburði síðustu fjögurra ára og græða sárin. Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um málið umfram það sem þegar hefur komið fram. Enn þurfi að rannsaka fortíð og ferði Devlins og kanna bakgrunn hans. Enn sé mikið verk óunnið áður en hann verði dreginn fyrir dóm.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Innlent Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Erlent Úkraínufundinum í London frestað Erlent Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Frans páfi er látinn Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Segja samfélagsmiðla valda auknu kvenhatri og rasisma í skólum Ísraelsher játar „fagleg mistök“ í máli hjálparstarfsmannanna Samsetning lyfja gæti komið í veg fyrir þúsundir hjartaáfalla Páfinn fordæmdi gyðingahatur og ástandið á Gasa Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Sjá meira