Búist við tilkynningu um kjarnorkuáætlun 9. apríl 2007 11:15 Fréttamannafundur Ahmadinejads hefst á hádegi að íslenskum tíma. MYND/AFP
Búist er við því að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, skýri frá því í dag að Íranar ætli að hefja auðgun úrans í stórum stíl. Hingað til hafa þeir aðeins verið með örfáar skilvindur, eða um 350, í tilraunaskyni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur sagt að Íranar hafi sett upp 300 skilvindur í viðbót og hugsanlegt er að nú verði tilkynnt að hafin hafi verið uppsetning á 3.000 skilvindum. Skilvindur eru það sem notað er til þess að auðga úran og gera það hæft til úrvinnslu. Úrangas er sett í skilvindur sem síðan snúast á ógnarhraða og þétta gasið. Við þetta ferli myndast auðgað úrangas sem er síðan þétt í fast efni. Það er síðan er hægt að nota annaðhvort til raforkuframleiðslu, sem Íranar segjast ætla að gera, eða til kjarnorkuvopnaframleiðslu, en því halda vesturlönd fram. Með 3.000 skilvindur tæki það Íran eitt ár að framleiða nóg af auðguðu úrani til þess að búa til kjarnorkusprengju. Ef Ahmadinejad segir að vinna sé hafin við að setja upp 3.000 nýjar skilvindur er ljóst að það á eftir að koma illa við vesturlönd. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur þegar samþykkt refsiaðgerðir gegn Íran vegna kjarnorkuáætlunar þarlendra stjórnvalda. Viðræður standa nú yfir á milli Írana og IAEA um að veita eftirlitsmönnum aðgang að kjarnorkustöðinni í Natanz, en þar ætla Íranar sér að byggja 54.000 skilvindur. Hægt er að sjá ýtarlegri skýringu um hvernig auðgun úrans fer fram og hvað skilvindur eru á Vísindavef Háskóla Íslands. http://visindavefur.hi.is/?id=5687
Erlent Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira