Mourinho: Besti útisigur liðsins í þrjú ár 10. apríl 2007 21:26 NordicPhotos/GettyImages
Jose Mourinho var alsæll með leik sinna manna í Chelsea í kvöld þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Valencia 2-1 á útivelli í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Sigur Chelsea var fyllilega verðskuldaður og engu líkara en eitt lið væri á vellinum í síðari hálfleik. "Síðari hálfleikurinn var stórkostlegur og við pressuðum þá stíft þó við værum að tapa 1-0. Ég var farinn að undirbúa mig fyrir framlengingu en við áttum svo sannarlega skilið að fara áfram í venjulegum leiktíma, því Valencia fékk engin færi í hálfleiknum. Þetta var sennilega besta frammistaða liðsins á útivelli síðan ég tók við og það er hreint ótrúlegt hvað þessi hópur er að afreka á tímabilinu," sagði Mourinho. John Terry sagði að stjórinn hefði talað rækilega yfir sínum mönnum í hálfleik. "Hann er glaður núna - en hann var það ekki í hálfleik," sagði Terry þegar stjóri hans stökk á hann í miðju viðtali eftir leikinn. "Við stóðum okkur ekki vel í fyrri hálfleiknum og hann gaf okkur spark í afturendann.. Við sögðum fyrir leikinn að það breytti engu þó þeir myndu skora og það kom á daginn. Við héldum alltaf áfram að berjast og það skilaði sér - því við vorum miklu betri í þessum leik," sagði fyrirliðinn.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Í beinni: Fram - Haukar | Barist um bikarinn Handbolti Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Fleiri fréttir „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Auðun tekur við Þrótti Vogum Messi var óánægður hjá PSG „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Hefur Amorim bætt Man United? Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Albert kom við sögu í naumum sigri Bayern kom til baka gegn Stuttgart Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Ísak Bergmann skoraði í leik sem mátti ekki tapast en tapaðist samt Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Daði Berg frá Víkingi til Vestra Gera grín að Jürgen Klopp Víkingar skipta um gír Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Sjá meira