Kárahnjúkar virkja kínverska drauma 11. apríl 2007 10:47 Kínverskur verkamaður að störfum á Kárahnjúkum. MYND/Adam Scott
Kárahnjúkavirkjun er þegar farin að hafa áhrif á landann. En það sem oft gleymist er að hún hefur áhrif langt út fyrir landsteinana. Þetta kemur fram í grein sem birt var á vefsíðu Time þann 6. apríl síðastliðinn. Í greininni er talað um þann mikla fjölda Kínverja sem vinnur við gerð stíflunnar. Í henni segir að 40% af 1150 verkamönnum séu frá Kína. Ástæðan er sögð vera hversu lítill hópur hæfra verkamanna sé til staðar á Íslandi og þau laun sem Kínverjunum stendur til boða. Launin sem þeir fá á einum mánuði hér á landi eru sambærileg við tveggja ára laun í Kína. Sumir þeirra hafa lengi unnið fyrir Impregilo. Sumir eiga fjölskyldur í Kína sem þeir hafa ekki séð í langan tíma. Margir þeirra senda peninga til baka, kaupa hús handa foreldrum sínum eða stofna sín eigin fyrirtæki. Impregilo er hrósað fyrir að reyna að gera sem best við starfsmenn sína, sem kvarta einna helst yfir kuldanum og skorti á sólarljósi. Í lokin á greininni er talað við Tian Weili, en hún á 11 ára dóttur í Kína. Hún hefur verið í burtu frá fjölskyldu sinni í fjögur ár. Fyrir henni er valið auðvelt. Að vera á Kárahnjúkum hjálpar henni og gefur henni möguleikann á að breyta lífi fjölskyldu sinnar til batnaðar. Hægt er að sjá greinina í fullri lengd hér.
Erlent Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira