Samtök tengd al-Kaída lýsa yfir ábyrgð 11. apríl 2007 19:15
Samtök sem kenna sig við al-Kaída segjast bera ábyrgð á sprengjuárásum sem gerðar voru Algeirsborg í Alsír í dag. Þrjátíu létu lífið í tilræðunum, sem meðal annars var beint gegn forsætisráðherra landsins. Sprengingarnar tvær urðu með skömmu millibili, sú fyrri varð við skrifstofur forsætisráðherra landsins en sú síðari í einum af úthverfum borgarinnar. Talsverðar skemmdir urðu á nálægum byggingum og að vonum greip um sig mikill ótti á meðal fólks á vettvangi. Framhlið forsætisráðuneytisins rifnaði nánast af í sprengingunni enda mátti heyra hana úr tíu kílómetra fjarlægð. Talið er að sjálfsmorðsárásarmaður hafi þar verið að verki. Þótt forsætisráðherrann hafi ekki sakað í tilræðinu voru aðrir ekki svo lánsamir. Talið er að 30 manns hafi týnt lífi í sprengingunum tveimur og yfir 160 manns særst, margir eftir að hafa fengið glerbrot eða annars konar brak úr húsum í sig. Síðdegis lýstu íslömsk öfgasamtök sem segjast hluti af al-Kaída hryðjuverkanetinu yfir ábyrgð á tilræðunum. Þau kváðust í yfirlýsingu sinni einnig hafa staðið fyrir árásum í nágrannaríkinu Marokkó undanfarna daga. Árásirnar í dag eru mikið áfall fyrir alsírsk stjórnvöld en landið er enn að jafna sig á blóðugri borgarastyrjöld sem stóð yfir stóran hluta síðasta áratugar og kostaði hátt í 200.000 mannslíf.
Erlent Fréttir Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira