Þær fregnir bárust nýverið frá draumaverksmiðjunni í Hollywood að til stæði að kvikmynda enn eina af sögum rithöfundarins Chuck Palahniuk, en hann er þekktastur á meðal kvikmynda-áhugafólks fyrir að hafa skrifað söguna sem kvikmyndin Fight Club var gerð eftir. Myndin sú hefur allt frá frumsýningu notið gríðarlegra vinsælda og virðingar og hefur meðal annars reglulega birst á listum kvikmyndaaðdáenda um heim allan yfir bestu myndir allra tíma.
Nú stendur til að kvikmynda söguna Haunted sem kom út árið 2005, en í henni segir frá hópi rithöfunda sem sækjast eftir að komast að í afskekktu listamanaathvarfi til þess að leggja stund á skriftir. Þegar þeir koma á staðinn renna á þá tvær grímur, enda kemur í ljós að þeir eru, gegn vilja sínum, orðnir þátttakendur í raunveruleikasjónvarpsþætti sem reynir svo um munar á þolrif þeirra. Stjórnendur þáttarins skrúfa fyrir hita, vatn og rafmagn og rithöfundarnir verða sífellt skapstirðari. Eins og Palahniuks er von og vísa endar ævintýrið svo á óvæntan hátt, en nánari upplýsingar um endinn liggja þó hvergi á lausu.
Nokkuð er í að tökur á Haunted hefjist, en þeir sem eiga bágt með að bíða eftir næstu Palahniuk-kvikmynd þurfa þó ekki að örvænta þar sem kvikmynd byggð á sögunni Choke er væntanleg í kvikmyndahús síðar í vetur. Einnig er verið að vinna að kvikmyndagerðum af sögunum Invisible Monsters og Survivor.
- vþ