Breyttur Organ opnar á ný 2. október 2008 07:00 Organ við Hafnarstræti hefur fengið nýja eigendur og verður staðurinn opnaður síðar í mánuðinum. fréttablaðið/arnþór
Páll Gunnar Ragnarsson, einn af eigendum skemmtistaðarins 22 við Laugaveg, og Gunnar Már Þráinsson hafa fest kaup á Organ í Hafnarstræti. Samkvæmt heimildum Fréttblaðsins verður staðurinn opnaður á meðan á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves stendur dagana 15. til 19. október. Eftir hana hefst undirbúningur að veglegri opnun sem verður mánaðarmótin þar á eftir. Heyrst hefur að klúbbastemning muni ráða ríkjum á nýja staðnum í anda skemmtistaðanna Thomsen og Kapital sem nutu vinsælda fyrir nokkrum árum. Við hliðina á Organ er einmitt klúbbastónlist í hávegum höfð á Tunglinu og sé þessi orðrómur á rökum reistur eiga þessir tveir staðir eftir að berjast hartammlega um gesti í framtíðinni. Þorsteinn Stephensen, skipuleggjandi Iceland Airwaves, er ánægður með að fá afnot af Organ á meðan á hátíðinni stendur. „Við höfðum miklar áhyggjur af því að þetta myndi lenda í miklum ógöngum en þetta eru góðar fréttir og við óskum þeim alls hins besta," segir hann. Tæpur mánuður er liðinn síðan Organ lagði upp laupana með miklum hvelli vegna deilna sem stóðu yfir um greiðslu á leigu og um aðrar vanefndir rekstaraðilans. Lýsti Inga Sólveig Friðjónsdóttir, þáverandi eigandi staðarins, því yfir að reksturinn stæði ekki undir sér og efaðist um að hægt væri að reka slíkan tónleikastað nema með ríkisstyrkjum. Ekki náðist í nýja eigendur Organs við vinnslu fréttarinnar. -fb
Mest lesið „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira