Ráðstefna á RIFF 29. ágúst 2008 06:00 Heimildarmyndin Heima um tónleikaferð Sigur Rósar telst afar vel heppnuð. Fréttablaðið/Heiða
Ráðstefna um snertifleti tónlistar og kvikmynda verður á tónlistardagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, eða RIFF. Sjónum verður beint að heimildarmyndinni Heima og skoðað hvað gerði þá mynd eins vinsæla og vel heppnaða og raun ber vitni. Til þess eru kallaðir umboðsmaður Sigur-Rósar, Kári Sturluson, Brad Abramson, varaforseti heimildardeildar VH1, fulltrúi True North og Stefan Denitriou hjá EMI. Þá verður fjallað um hljóðspor, eða „soundtrack“ og hvernig tónlist og kvikmyndir geta aukið sölu hvort á öðru. Til þess eru fengnir Eric Michon frá Universal Music í Frakklandi og Thomas Jamois, forstjóri hljóðsporadeildar Naïve. Loks verða samningar og samningsvandamál rædd. Mikkel Maltha frá Zentropa í Danmörku og Elisa Lundgren leiða gesti úr frumskógi lagalegra vandkvæða í Evrópu en Atli Örvarsson fræðir gesti um aðferðir Hollywood við kaup á tónlist í kvikmyndir. Ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu 2. október og kostar 15.000 krónur að taka þátt, hádegismatur innifalinn. Hægt er að skrá þátttöku í gegnum netfangið [email protected]. -kbs
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira