Innlent

Staða efnahagsmála verri en talið var

Rólegt Umsvif á hafnarbakkanum eru nú minni en oft áður, enda hefur innflutningur dregist verulega saman. En útflutnings­atvinnuvegirnir eiga líka undir högg að sækja sökum lækkandi söluverðs. Fréttablaðið/GVA
Rólegt Umsvif á hafnarbakkanum eru nú minni en oft áður, enda hefur innflutningur dregist verulega saman. En útflutnings­atvinnuvegirnir eiga líka undir högg að sækja sökum lækkandi söluverðs. Fréttablaðið/GVA

Horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar voru verri á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans 19. mars en við stýrivaxtaákvörðun 29. janúar.

Þetta má lesa úr fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, frá 17. og 18. mars. Þar er gerð grein fyrir ákvörðunum nefndarinnar um eins prósentustigs lækkun stýrivaxta 19. mars og forsendum þeirra.

Um miðjan mars var eftirspurn í heiminum orðin minni en gert hafði verið ráð fyrir, efnahagskreppan hafði dýpkað á heimsvísu og vaxtarhorfur helstu viðskiptalanda Íslendinga versnað.

Áhrif þessa komu fram í lægra verði fyrir helstu útflutnings­afurðir. Í fundargerðinni segir að spáð sé að verð á áli fyrir árið 2009 verði um átta prósentum lægra en áætlað var í janúar. Þá sýni ný gögn um sjávarútveginn að spáin í janúar hafi byggt á of mikilli bjartsýni. Fiskverð hafi lækkað um fjögur prósent milli mánaða í janúar og hafi haldið áfram að lækka í febrúar og mars.

Endurskipulagning innlenda bankakerfisins gekk hægar en ætlað var samkvæmt fundargerðinni. Útlán innlánsstofnana frá bankahruninu hafi verið nánast engin. Þá hafi gengi krónunnar veikst, eftir hækkun í byrjun ársins.

Í fundargerðinni kemur fram að þjóðarbúskapurinn aðlagist hratt, sem endurspegli sveigjanleika hans. Verðbólguþrýstingur muni óðum hverfa og verðlag verða stöðugt á meðan gengið helst tiltölulega stöðugt.

Peningastefnunefndin var sammála um að við núverandi aðstæður væri mikilvægast að tryggja gengisstöðugleika. Því var tekin ákvörðun um hóflega lækkun stýrivaxta, úr átján prósentum í sautján. Það hafi verið viðeigandi með hliðsjón af hugsanlegum neikvæðum áhrifum af slökun peningastefnu á stöðugleika krónunnar.

Birting fundargerða í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar er nýmæli. Í nýjum lögum um Seðlabankann frá því í febrúar er kveðið á um að þær skuli birta tveimur vikum eftir hverja ákvörðun.

Í peningastefnunefnd Seðlabankans sitja Þórarinn G. Pétursson, starfandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri. Að líkindum funda þeir nú stíft, enda viðbótarvaxtaákvörðunar­dagur á morgun.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×