Matur

Súkkulaðimús

Desert - Súkkulaði mús

300gr 60-70% súkkulaði

50gr smjör ( helst saltlaust)

4 stk egg (aðskilin)

100gr sykur

5dl rjómi

Súkkulaði og smjör er brætt yfir vatnsbaði. Eggjarauðurnar eru þeyttar með 25 gr af sykri og hvíturnar eru svo þeyttar með 75gr af sykri. Eggjablöndunni er blandað varlega saman við ásamt súkkulaðinu og að lokum er létt þeyttum rjómanum blandað saman við.

Músin er sett í fallegar skálar og sett í kæli í c.a 3 klst eða lengur. Gott er að vera með þeyttan rjóma.

Vín með dessert: Torres Orange liquor, hreinn og tær appelsínu líkjör.

Torres Orange liquor fær einkennandi beiskleika úr appelsínu berki, en mýktina og dýptina úr brandí, kannel, kardimónu og negul. Einnig einkennist Torres Orange liquor af kaffi, melasa, blómum og hunangi. Þetta er líkjör sem er eins og silkimjúkur elexir.

Glös: Líkjörglös eða líkjöraskál.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.