Matur

Krónhjartarsteik

Kjötið er brúnað á pönnu og kryddað með salt og pipar, nokkrar timjangreinar eru steiktar með.

Kjötið er sett í eldfast mót og eldað við 180° í c.a 12 mín eða þar til kjarninn er kominn í c.a 55° látið kjötið standa í c.a 5-7 mín áður en það er skorið.

Kartöflur:

Bökunnar kartöflur eru skornar í stórar skífur og steiktar á pönnu á öllum hliðum, kryddið með mikið af salti. Setjið í eldfast mót og setjið meira salt yfir. Bakið við 180° í c.a 20 mín.

Vínið með steikinni.

Morandé Grand Reserva Merlot. Þetta er vín í hæðsta gæðaflokki, sem hefur verið geymt á eik í 7 mán. Góður á bragðið með mikið af ávexti, djúpt og kröftugt í senn. Gullfallegt og guðdómlegt vín. Mjög langt og nammilegt eftirbragð.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.