Skoðun

Við styðjum öll athafnasemi

Birkir Jón Jónsson, Dagur B. Eggertsson og Katrín Jakobsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifa
Í gegnum sögu Íslands hafa margvísleg áföll dunið yfir þjóðina. Sum hafa verið af völdum náttúru og önnur hafa verið efnahagsleg. Það sem öll þessi áföll eiga þó sameiginlegt er að íslensku þjóðinni hefur tekist að vinna sig út úr þeim. Sú efnahagskreppa sem við erum nú stödd í ætti ekki að verða undantekning á þeirri reglu. Íslendingar munu halda áfram að tryggja að hér á landi verði lífskjör með því besta sem þekkist. Um þetta er engin ágreiningur þótt stjórnmálamenn deili um aðferðir og leiðir. Það er heldur ekki ágreiningur um að vandamál og erfiðleikar leysast ekki nema með því að fólk, stofnanir og fyrirtæki grípi til aðgerða. Ekkert vinnst með athafnaleysi - en á flestu má sigrast með athafnasemi.

Þjóðfundurinn sem haldinn var síðastliðinn laugardag sýndi að mörgum finnst kominn tími til þess að fólk snúi saman bökum og hyggi að framtíðinni. Á þjóðfundinum var jákvæðni og framtakssemi í öndvegi. Það er viðhorf sem þjóðin þarf mjög á að halda og allir ættu að fylkja sér um, óháð stjórnmálaskoðunum.

Í þessari viku verða haldnir yfir 100 viðburðir á Íslandi undir merkjum Alþjóðlegrar athafnaviku. Þessi þátttaka sýnir þá athafna og sköpunargleði sem þjóðin býr yfir. Hvort sem fólk finnur orku sinni farveg í rekstri fyrirtækja, sköpun menningar, nýsköpun í vísindum eða með því að vinna góðverk fyrir náunga sinn þá getur hver og einn komið miklu til leiðar og haft jákvæð áhrif áumhverfi sitt og samfélag. Um þetta er heldur ekki deilt, hvar sem menn standa stjórnmálum.

Hið öfluga sjálfboðaliða- og hugsjónastarf sem fólk innir af hendi um land allt um þessar mundir er svo sannarlega þakkarvert. Við hvetjum alla til að styðja jákvætt frumkvæði og taka þátt í því. Það er mikilvægt að við stöndum saman um þá fjölmörgu hluti sem við erum öll sammála um.

Birkir Jón Jónsson er varaformaður Framsóknarflokksins; Dagur B. Eggertsson er varaformaður Samfylkingarinnar; Katrín Jakobsdóttir er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs; og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir; varaformaður Sjálfstæðisflokksins.







Dagur B. Eggertsson
Katrín Jakobsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir



Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×