

Um fimmtíu manns eru nú staddir í fjöldahjálparmiðstöðinni að Heimalandi, miðja vegu á milli Hvolsvallar og Skóga. Fólkið er rólegt en þreytt að sögn en nokkur börn eru í hópnum, þar á meðal þriggja mánaða barn. Fjórtán útlendir ferðamenn eru einnig í hópnum.
Enn sést ekkert til gossins í Eyjafjallajökli. Skjálftahrina hófst í jöklinum um ellefuleytið í gærkvöld og um fjögurleytið í nótt bárust þær upplýsingar frá Veðurstofunni að mælar bentu til þess að gos væri hafið.
Mælingar benda til þess að eldgos sé hafið undir suðvesturhluta Eyjafjallajökuls. Að sögn Veðurstofunnar benda mælingar til þess að órói fari vaxandi og allar líkur á því að gos sé hafið.
Since it now considered to be highly likely that there is a volcanic eruption under the south western side of the summit of Eyjafjallajökull glacier, the Department of Civil Protection and Emergency Management, has decided to evacuate all areas in the immediate vicinity of the glacier.
Um 100 manns eru komnir í fjöldahjálparstöðina í Hvolsskóla, að því er Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins telur.
Magnús Tumi Guðmundsson, hjá Veðurstofu Íslands, segir að upptök skjálftanna sem hófust í nótt mælist undir toppi Eyjafjallajökuls. Það kunni að vera að um gosóróa sé að ræða þannig að skjálftarnir marki upphaf að nýju eldgosi.
Verið er að bera teppi og annan nauðsynjabúnað inn í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Þar hefur verið opnuð fjöldahjálparstöð sem tekur á móti fólki úr Fljótshlíðinni. Fólk sem býr í Heimalandi er beðið um að vera kyrrt heimafyrir.
Tekin hefur verið ákvörðun um rýmingu í Fljótshlíð og í Landeyjum þar sem eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli. Víðir Sigurðsson hjá Almannavörnum segir að verið sé að koma skilaboðum til fólks á svæðinu. Um 700 manns eru búsettir á svæðinu sem rýma skal en um sömu áætlun er að ræða og virkjuð var þegar gaus á Fimmvörðuhálsi.
Jarðskjálftahrina hófst undir Eyjafjallajökli um ellefuleytið í kvöld. Lögreglan á Hvolsvelli hefur hafið rýmingu á svæðinu og eru hús rýmd alveg að Skógum.
Gosinu á Fimmvörðuhálsi er lokið en því lauk í fyrradag. Virknin í eldstöðinni var orðin mjög lítil á sunnudag en fyrir hádegi í fyrradag var smá virkni í einum gígnum. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur fékk Jón Kjartansson þyrluflugmann til að smella af mynd klukkan ellefu á mánudagsmorgun og senda honum í kennslustund í Háskóla Íslands.
Lögregla hefur lokað veginum frá Hvolsvelli að Skógum vegna jarðskjálftahrinunnar í Eyjafjallajökli. Ef gos hefst undir jökli má búast við hlaupi í Markarfljóti.