Innlent

Ásakanirnar sagðar ekki svaraverðar

Svarar ásökunum með því að benda á aðra.Fréttablaðið/Valli
Svarar ásökunum með því að benda á aðra.Fréttablaðið/Valli
„Þessi orð munu á endanum dæma sig sjálf," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, um margvíslegar ásakanir Sigurðar Einarssonar á hendur embættinu í Fréttablaðinu á laugardag.

„Þetta gefur hvorki að efni né formi til ástæðu til neinna viðbragða af hálfu embættisins," segir Ólafur.

Sigurður, sem er fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sakar embætti Ólafs um óskiljanlegan yfirgang og valdníðslu gagnvart sér og öðrum sakborningum.

Ólafur bætir því við að eðli málsins samkvæmt eigi hann ekki gott með að bregðast við ásökunum þeirra, sem embættið er að rannsaka. „Það segir sig sjálft að sá, sem hefur rannsókn máls á hendi, hefur mjög takmarkaða möguleika til að ræða inntak rannsóknarinnar."

Sigurður sætir, ásamt fleiri fyrrverandi yfirmönnum Kaupþings, rannsókn hjá embættinu vegna gruns um stórfellda markaðsmisnotkun og önnur efnahagsbrot, sem embættið hefur sagt vera „umfangsmikil, kerfisbundin og skipulögð".

Í viðtalinu á laugardag ber Sigurður einnig rannsóknarnefnd Alþingis ýmsum ásökunum.

Ekki náðist í Pál Hreinsson, sem var formaður rannsóknarnefndar Alþingis, þegar leitað var viðbragða við ásökunum Einars í gær, og Tryggvi Gunnarsson, einn þriggja nefndarmanna, sá enga ástæðu til að tjá sig. Nefndin líti svo á að hún hafi fyrir löngu lokið störfum.

Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, svarar hins vegar ásökunum Sigurðar í grein hér í blaðinu í dag. Hann segir að Sigurð hljóti að misminna um bréf, sem Jón skrifaði Sigurði vorið 2006. Sigurður var þá formaður nefndar um framtíðarstefnu á fjármálasviði.

Í viðtalinu á laugardag segir Sigurður að Jón hafi í bréfinu neitað að ræða hlutverk Seðlabankans sem lánveitanda til þrautavara.

„Ég segist ekki geta tekið þátt í umræðum og afgreiðslu þessara mála í nefndinni vegna starfa minna í bankanum," segir Jón um efni bréfsins. „En alls ekki er mælt gegn því að nefndin fjalli um þessi mál."[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×