

Að mótmæla – eða mæla með
Sú staða sem upp er komin í Icesave-málinu getur orðið þjóðinni afar erfið. Það er auðvelt að hrópa „Vér mótmælum allir" eins og formaður Sjálfstæðisflokksins gerði á laugardag. Eftir stendur á hinn bóginn að forystumenn Sjálfstæðisflokksins gáfu endurteknar yfirlýsingar um að ríkið myndi standa að baki Tryggingasjóði innstæðueigenda fyrir bankahrun. Allt frá hruni hafa allar ríkisstjórnir ítrekað lýst vilja til að semja um lausn þessa máls. Í því hlýtur að felast að allir flokkar geti sammælst um einhver lágmarks viðmið samninga sem hægt sé að setja fram sameiginlega við viðsemjendur okkar, jafnvel þótt hin lagalega skuldbinding sé áfram háð fyrirvara.
Það verður aldrei samstaða um að skella landinu í lás og neita að semja fyrr en dómstólar hafi kveðið upp úr um hina lagalegu skuldbindingu. Slík aðferðafræði felur í sér fráhvarf frá 15 mánaða tilraunum allra ábyrgra stjórnmálaafla til úrlausnar málsins í sátt við önnur lönd og setur íslenskt efnahagslíf í óbærilega stöðu. Við gæti tekið langdregið þóf lagalegrar þrætubókarfræði, á sama tíma og lánafyrirgreiðsla og fjármögnunarkostir fyrirtækja verða í uppnámi. Lánshæfismat ríkisins yrði í ruslflokki og við myndum því festast í hringrás hárra stýrivaxta, lágra launa, mikils atvinnuleysis og viðvarandi þrýstings á gengi krónunnar. Fyrirtæki sem starfa á alþjóðlegum samkeppnismörkuðum myndu flytja höfuðstöðvar sínar úr landi.
Sundurlyndi hefur áður leikið Íslendinga grátt. Okkur hefur sannarlega mistekist að skapa víðtæka sátt um niðurstöðu í þessu máli. Eftir stendur að nú er mikið í húfi. Við þurfum ekki fleiri stjórnmálamenn sem eru til í að mæla á móti. Við þurfum þvert á móti stjórnmálamenn sem treysta sér til að mæla með - mæla með samstöðu um samkomulag sem virðir ítrekuð fyrirheit íslenskra stjórnvalda til annarra ríkja um ríkisábyrgð á skuldbindingum Tryggingasjóðsins, með þeim bestu skilmálum sem hægt er að fá. Er það ekki verðugt verkefni?
Höfundur er félags- og tryggingamálaráðherra.
Skoðun

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar