Innlent

Forðuðust að spilla sök

„Varla þarf að ræða það að Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Guðmundsson og Bakkavararbræðurnir [Ágúst og Lýður Guðmundssynir] réðu ekki við eignarhald á bönkunum. Sjálfir voru þeir í fararbroddi við hömlulausa þenslu útlána sem felldu bankana,“ segir í 8. kafla skýrslu rannsóknarnefndar. fréttablaðið/Vilhelm
„Varla þarf að ræða það að Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Guðmundsson og Bakkavararbræðurnir [Ágúst og Lýður Guðmundssynir] réðu ekki við eignarhald á bönkunum. Sjálfir voru þeir í fararbroddi við hömlulausa þenslu útlána sem felldu bankana,“ segir í 8. kafla skýrslu rannsóknarnefndar. fréttablaðið/Vilhelm
Þrátt fyrir að rannsóknarnefnd Alþingis setji fram mikið af upplýsingum um vafasama viðskiptahætti aðaleigenda bankanna og eignarhaldsfélaga þeirra lagði nefndin litla áherslu á að taka skýrslur af þessum sömu aðilum. Þó var áhersla lögð á að ræða við þá um samskipti þeirra við stjórnvöld þar sem störf stjórnvalda voru í brennidepli nefndarinnar.

Viðmælendur Fréttablaðsins meðal lögmanna segja að skýringarinnar á þessu sé að leita í 14. grein laga um störf rannsóknarnefndarinnar. Þar segir: „Ekki er heimilt að nota upplýsingar sem einstaklingur hefur veitt nefndinni sem sönnunargagn í sakamáli sem höfðað er gegn honum."

Ítarlegar skýrslutökur hjá nefndinni hefðu þess vegna getað valdið sakarspjöllum og getað dregið úr líkum á að þessir aðilar fengju refsidóma. Slíkar skýrslur hefðu aðeins flækt réttarstöðuna, þrengt möguleika sérstaks saksóknara og auðveldað lögmönnum sakborninga að halda gögnum og upplýsingum utan við dómsalinn.

Sem dæmi er nefnt að í yfirheyrslu sinni yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, aðaleiganda Glitnis, virðist nefndin eingöngu hafa spurt um aðdraganda þess að ríkið yfirtók hlutabréf í Glitni. Ekki virðist hafa verið spurt um viðskipti sem Jón Ásgeir tók þátt í, aðeins þessi samskipti hans við stjórnvöld í aðdraganda yfirtökunnar. Störf stjórnvalda voru enda í brennidepli nefndarinnar og niðurstaðan varð sú að þau hefðu vanrækt starfsskyldur sínar.

Markmið nefndarinnar var að afla gagna svo að Alþingi gæti ákveðið hvort tilefni væri til frekari aðgerða gegn stjórnvöldum; ráðherrum og embættismönnum. Lögreglurannsóknir og saksókn yfir viðskiptamönnum voru annað mál, á könnu sérstaks saksóknara.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×