Vaxtaóvissa dregur kreppuna á langinn [email protected] skrifar 3. júlí 2010 04:00 Taki samningsvextir við af gengistryggingu getur það haft alvarlegar afleiðingar, að sögn Franeks Rozwadowskis, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fréttablaðið/Arnþór
Verði niðurstaða Hæstaréttar sú að miða við samningsvexti á öllum gengistryggðum lánum getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið, tafið fyrir afnámi gjaldeyrishafta, jafnvel verði að hækka skatta. „Því lægri sem vextirnir verða þeim mun meira verður áfallið á bankana og ríkissjóð,“ segir Franek Rozwadowski, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á landi, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir tilmælin sem Seðlabankinn og Fjármáleftirlitið lögðu fram í vikunni jákvæð eftir þá óvissu sem skapaðist í kjölfar dóms Hæstaréttar fyrir hálfum mánuði. Hann segir mikilvægt að eyða óvissunni sem fyrst. Franek segir áhyggjuefni að á meðan óvíst sé við hvað eigi að miða í stað gengistryggingar sé útlit fyrir að endurskipulagning skulda heimila og fyrirtækja landsins tefjist meir en orðið er. Það sama eigi við um afnám gjaldeyrishafta. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í síðustu viku fyrstu skref í afnámi haftanna geta hafist í haust, eigi síðar en í október. Franek vill ekki dagsetja afnám hafta, en segir: „Þetta er skólabókardæmi. Gjaldeyrishöftum er ekki aflétt þegar óvissa ríkir í efnahagsmálum.“ Franek leggur áherslu á að Hæstiréttur skeri eins fljótt og auðið sé úr um hvað taki við af gengistryggðum lánum og hvernig þau beri að skilgreina. Verði niðurstaðan sú að samningsvextir standi og að skilgreining á ólögmæti gengistryggðra lána nái til bíla-, íbúða- og neyslulána auk fyrirtækjaskulda muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið. „Bankarnir geta tekið eitthvað á sig. En þeir munu aldrei ráða við þetta allt,“ segir Franek og bætir við að þótt kröfuhafar muni leggja eitthvað af mörkum til að bæta hag bankanna muni megnið af nýju hlutafé koma frá ríkissjóði. Það verði kostnaðarsamt, ekki síst þegar við bætist að ríkissjóður ábyrgist nú þegar allar innistæður í bankakerfinu. „Þetta gæti leitt til hærri skatta og sársaukafullra aðgerða til að grynnka á skuldum hins opinbera. Við það mun hægja á efnahagsbatanum,“ segir Franek Rozwadowski.
Innlent Mest lesið Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Viðskipti innlent Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Viðskipti innlent Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Viðskipti innlent Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Verðbólga hjaðnaði minna en búist var við og útlitið er svartara Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Landsvirkjun kaupir vindmyllur fyrir tuttugu milljarða Tóku fyrstu skóflustunguna að einu stærsta vinnsluhúsi landsins Steyptu fyrsta gullmolann Verðbólgan komin undir fimm prósent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Helena til Íslandssjóða Two Birds verður Aurbjörg Hafa sótt milljarð í nýtt hlutafé Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Sjá meira