Baugur hafði tangarhald á bönkunum 14. apríl 2010 06:00 Jón Ásgeir og Nokkrir viðskiptafélagar Á myndinni, sem tekin var á aðalfundi FL Group 2006, eru Hannes Smárason, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Þorsteinn Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Smári S. Sigurðsson og Magnús Ármann. „
Varla þarf að ræða það að Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Guðmundsson og Bakkabræðurnir réðu ekki við eignarhald á bönkunum. Sjálfir voru þeir í fararbroddi við hömlulausa þenslu útlána sem felldu bankana." Þannig kemst danski bankasérfræðingurinn Jørn Astrup Hansen að orði í greinargerð sem hann vann fyrir rannsóknarnefnd Alþingis um mat á starfsemi bankanna. Fyrirtæki Jóns Ásgeirs og tengdir aðilar var sá fyrirtækjahópur sem var umfangsmestur í viðskiptum við íslensku bankana. Voru þau veruleg í öllum þremur bönkunum. Í upphafi árs 2005 var Landsbankinn með hæst útlán til hópsins, Kaupþing með litlu minna en Glitnir með áberandi lægst útlán. Á seinni hluta árs 2007 voru allir bankarnir með hátt í eða yfir tveggja milljarða evra útlán til samstæðunnar. Þá var Jón Ásgeir orðinn ráðandi hluthafi í Glitni. Samtals námu lánin þá 5.740 milljónum evra (660 milljörðum króna samkvæmt miðgengi). Það var meira en helmingur af samanlögðum eiginfjárgrunni bankanna þriggja og ellefu prósent af öllum útlánum móðurfélaga bankanna. Félögin skipta tugum en á tímabili námu lán bara til Baugs og FL Group 2,3 milljörðum evra eða 21 prósenti af samanlögðum eiginfjárgrunni stóru bankanna. Í framhaldi eigendaskipta í Glitni margfölduðust lánveitingar bankans til félaga Jóns Ásgeirs og tengdra aðila. Í byrjun árs 2008 fara útlán Glitnis til Baugs og FL yfir 40 prósent af eiginfjárgrunni. Við fall Glitnis námu lán til Baugs og tengdra félaga tæpum tveimur milljörðum evra (rúmlega 250 milljörðum króna). Var það um 70 prósent af eiginfjárgrunni bankans. Það er til marks um hve mikil umsvif Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans í bankakerfinu voru að rannsóknarnefndin kemst svo að orði: „Fjölskyldan í heild myndar svo stóra áhættu hjá bankakerfinu að fullyrða má að enginn bankanna hafi haft efni á að gjaldfella lán á aðila tengdum þeim, vegna hugsanlegra keðjuverkandi áhrifa." Það þýðir að þegar félög í eigu fjölskyldunnar stóðu frammi fyrir að geta ekki greitt af lánum voru þeim veitt ný lán til að greiða af þeim gömlu. Enginn gat hætt á að Baugur og fyrirtæki honum tengd færu í þrot. Útlánaskuldbindingar fyrirtækjahópsins voru orðnar of stórar fyrir allt íslenska bankakerfið og leiðir rannsóknarnefndin líkur að því að Baugur Group og tengd félög hafi haft „tangarhald" á bönkunum. Lög segja til um hve mikið bankar mega lána til einstakra viðskiptamanna og tengdra aðila. Ljóst er að lán til fyrirtækja í eigu Jóns Ásgeirs og tengdra aðila fóru langt yfir þau mörk. Skýrist það af ólíku mati á túlkun laganna og ólíku mati á hagsmunum. Til langs tíma voru til dæmis Jón Ásgeir og Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýliskona hans, ekki metin sem tengdir aðilar. Sama á við um Baug og FL Group og um tíma Baug og Landic Property. Bönkunum sjálfum bar að hafa eftirlit með tengslum viðskiptavina en þeir virðast hafa lagt sig í framkróka við að skera frekar á slík tengsl fremur en að meta tengda aðila og haga útlánum í samræmi við það. Í samantekt sem starfsmaður Fjármálaeftirlitsins gerði 2004 komst hann að þeirri niðurstöðu að Kaupþing og Landsbankinn hefðu ekki tengt stórar áhættuskuldbindingar Baugs og tengdra aðila. Málunum var ekki fylgt eftir gagnvart bönkunum og döguðu þau uppi. [email protected]
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð Viðskipti innlent Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Sjá meira