Abba lifnar við 30. september 2010 07:00 Endurkoma aldarinnar Víst er að Abba-aðdáendur út um allan heim myndu tryllast af gleði ef sveitin kæmi saman á ný.
Stórtíðinda gæti verið að vænta úr heimi popptónlistar. Sænsku súperstjörnurnar í Abba eru sagðar vera að hugsa alvarlega um að snúa aftur í sviðsljósið. Anni-Frid Lyngstad, best þekkt sem Frida, gaf Abba-aðdáendum hressilega undir fótinn í viðtali við breska blaðið Daily Express. Hún sagðist ræða það oft og ítrekað við Agnethu Fältskog hvort þær ættu ekki að taka lagið saman á ný. Þær Frida og Agnetha hafa staðið í vegi fyrir að sveitin komi saman en þær hafa margoft lýst því yfir að þær séu fyrir löngu hættar öllum afskiptum af tónlistarbransanum. „Það væri frábært að gera eitthvað með Agnethu. Ef við myndum gera eitthvað þá yrði erfitt að standast pressuna með Abba, þetta yrði aldrei neitt sem flygi lágt.“ Björn og Benny voru eiginmenn Agnethu og Fridu á þeim tíma sem frægðarsól Abba reis hæst. Sveitin hætti hins vegar með miklum látum árið 1983 og hefur margoft verið boðnar himinháar fjárhæðir fyrir að koma aftur saman. Björn og Benny hafa verið duglegir við að semja tónlist síðan leið þeirra lá frá hjónahljómsveitinni. Eina skiptið sem sveitin sást saman var árið 2008 þegar allir meðlimir sveitarinnar mættu á frumsýningu kvikmyndarinnar Mamma Mia! í London. Björn sagði þá að hljómsveitin myndi aldrei koma aftur. „Peningar eru ekki vandamálið í þeim efnum.“
Lífið Mest lesið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Gurrý selur slotið Lífið Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Lífið Ekkert gefið eftir í elegansinum Tíska og hönnun Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Minnast Árna Grétars á maraþon-minningartónleikum Setja markið á 29. sætið Einar og Milla eiga von á barni Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lærði mikið af öllu hatrinu Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Margt breyst í leiðsöguferðum á Breiðamerkurjökli eftir banaslysið Sjá meira