Foreldrarnir skrifa bók um Madeleine Óli Tynes skrifar 15. nóvember 2010 07:12 Madeleine McCann.
McCann hjónin segja að það hafi verið erfið ákvörðun fyrir þau að skrifa bókina. Eina ástæðan fyrir því að þau skuli gera það sé sú að sjóðurinn sem þau stofnuðu til þess að fjármagna áframhaldandi leit að Madeleine sé að verða uppurinn. Hver einasta króna sem fáist fyrir bókina fari í þann sjóð. Samningurinn hefur ekki verið gerður opinber en talið er að McCann hjónin fái umtalsverða fyrirframgreiðslu og hærri höfundarlaun en gengur og gerist. Bókin kemur út 28. apríl á næsta ári, en þá eru liðin fjögur ár frá því Madeleine hvarf þar sem hún var í sumarfríi í Portúgal ásamt fjölskyldu sinni. Þetta er önnur bókin sem skrifuð er um Madeleine litlu. Hin er ekki heldur komin út. Hana skrifaði portúgalskur lögregluforingi sem stjórnaði leitinni að Madeleine. Honum var síðan vikið úr starfi. McCann hjónin fengu bókina bannaða, en þeim úrskurði hefur nú verið hnekkt. Ekki er þó ljóst henær bókin kemur út. Það er forlagið Transworld sem gerði samning við hjónin en það forlag hefur gefið út bækur eftir þekkta höfunda. Meðal þeirra eru Dan Brown, Terry Pratchett og eðlisfræðingurinn Stephen Hawking.
Madeleine McCann Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Sjá meira