
Madeleine McCann

Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin
Pólsk kona sem hefur haldið því fram að hún sé Madeleine McCann, bresk stúlka sem hvarf árið 2007 úr fjölskyldufríi á Portúgal, er grunuð um umsáturseinelti sem beinist að McCann-fjölskyldunni.

Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum
Christian Brückner, sem liggur undir grun um að hafa rænt Madeleine McCann, hefur verið sýknaður af þremur nauðgunum og tveimur kynferðisbrotum gegn börnum.

Portúgölsk lögregluyfirvöld biðja foreldra Madeleine afsökunar
Sendinefnd háttsettra lögreglufulltrúa frá Portúgal ferðaðist til Bretlands fyrr á þessu ári til að biðja Kate og Gerry McCann, foreldra Madeleine McCann, afsökunar á því hvernig rannsóknin á hvarfi dóttur þeirra fór fram og hvernig komið var fram við fjölskylduna.

Hætta leitinni í Portúgal
Leitinni að líkamsleifum Madeileine McCann við uppistöðulón í Portúgal er lokið. Lögregluþjónar og aðrir opinberir starfsmenn eru að pakka saman við lónið sem er í um fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Praia da Luz, þar sem McCann hvarf árið 2007.

Þýskur saksóknari segir leitina tengjast ábendingum um hvarf McCann
Christian Wolter, þýskur saksóknari, segir að þýska lögreglan hafi tekið ákvörðun um að leita í og við uppistöðulón í Portúgal eftir að hafa fengið tilteknar ábendingar, eins og Wolter komst að orði. Leitin tengist hvarfi Madeleine McCann.

Leitað að Maddie við lón í Portúgal
Leit stendur nú yfir að líki Madeleine McCann við uppistöðulón í Portúgal sem er í um fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Praia da Luz, þar sem hún hvarf árið 2007. Kafarar hafa farið ofan í lónið og er einnig leitað í nánasta umhverfi þess, meðal annars með hundum og neðanjarðarratsjám.

Leitað við stíflu í máli McCann
Blásið hefur verið til leitar í lóni við stíflu í Portúgal í tengslum við mál Madeleine McCann. Stíflan er í um 50 km fjarlægð frá Praia da Luz, þar sem fjölskyldan hennar dvaldi þegar McCann var numin á brott í maí 2007.

Foreldrar Madeleine McCann: „Við munum aldrei gefast upp“
Foreldrar Madeleine McCann óska dóttur sinni til hamingju með 20 ára afmælisdaginn í dag. Þau segjast aldrei ætla að gefast upp á leitinni að dóttur sinni sem hvarf í Portúgal árið 2007.

Búið að hrekja kenningu konu sem taldi sig McCann
Búið er að hrekja kenningu pólskrar konu, sem taldi sig vera Madeleine McCann, með DNA-rannsókn. McCann hvarf sporlaust þegar hún var þriggja ára í fríi með fjölskyldu sinni í Portúgal árið 2007. Hvarfið vakti heimsathygli og hefur fengið gríðarmikla umfjöllun.

Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum
Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal.

Madeleine McCann: Foreldrarnir hafa ekki tapað voninni
Foreldrar Madeleine McCann, sem hvarf árið 2007, segjast ekki hafa tapað voninni á að endurheimta dóttur sína. Þau segjast jafnframt fagna því að manni hafi formlega verið veitt staða sakbornings.

Liggur formlega undir grun vegna hvarfs Madeleine McCann
Saksóknarar í Portúgal hafa nú tilkynnt að þýskur karlmaður liggi undir grun í tengslum við hvarf Madeleine McCann árið 2007. Þetta er í fyrsta sinn sem portúgölsk yfirvöld hafa tilkynnt að einhver liggi formlega undir grun í málinu frá því að foreldrar Madeleine lágu undir grun árið 2007.

Minnast þess að átján ár eru liðin frá fæðingu Madeleine McCann
Foreldrar hinnar bresku Madeleine McCann minnast þess í dag að átján eru liðin frá fæðingu hennar og segjast þau enn halda í „smá“ von um að hún muni finnast á lífi. Madeleine hvarf úr hótelíbúð fjölskyldunnar í Praia da Luz í Portúgal í maí 2007.

Leit í skógi í Þýskalandi tengist hvarfi McCann
Hópur lögregluþjóna hóf í gær leit á lóð í Hanover í Þýskalandi og er leitin sögð tengjast hvarfi Madeleine McCan

Sá grunaði í máli Madeleine talinn tengjast nauðgun frá 2004
Lögreglan í Portúgal rannsakar nú hvort maður sem hefur réttarstöðu grunaðs manns í rannsókninni á hvarfi Madeleine McCann geti einnig tengst nauðgun á Algarve í Portúgal, þremur árum fyrir hvarf Madeleine.

Leituðu að Madeleine við þrjá brunna
Lögregla og slökkvilið í Portúgal leituðu í dag í og við þrjá gamla brunna á Algarve-ströndinni.

Gætu þurft að hætta rannsókn ef fleiri vísbendingar berast ekki
Rannsakendur segjast búa yfir verulegum sönnunargögnum sem benda til þess að Madeleine McCann sé látin.

Mál Madeleine McCann: Rannsaka hvort hinn grunaði tengist hvarfi sex ára drengs
Lögreglan í Þýskalandi hefur tekið hvarf drengsins René Hasee, sem hvarf sporlaust í Portúgal árið 1996, aftur til rannsóknar. Lögreglan kannar nú hvort maður sem grunaður er um að tengjast hvarfi hinnar bresku Madeleine McCann árið 2007, kunni að bera ábyrgð á hvarfi René.

Því velt upp hvort yfirvöld hafi hunsað ábendingar um manninn sem grunaður er í máli Madeleine
Þýskir fjölmiðlar fjalla nú um hvort að rannsakendur á vegum þýsku sambandslögreglunnar hafi hunsað viðvaranir frá rannsakendum í Braunschweig árið 2013 varðandi Christian Brückner

Mál Madeleine McCann: Rannsaka hvort hinn grunaði tengist sambærilegu mannshvarfi
Lögregla í Þýskalandi hefur tekið hvarf stúlkunnar Inga Gehrike, sem hvarf sporlaust árið 2015, þá fimm ára gömul, til rannsóknar á ný.

Sagður hafa setið á bar og játað aðild sína að hvarfi Madeleine
Maðurinn sem nú er grunaður um að tengjast hvarfi Madeleine McCann, breskrar stúlku sem hvarf úr fjölskyldufríi í Portúgal í maí 2007, er sagður hafa játað aðild sína að hvarfi hennar þar sem hann sat og ræddi við mann á bar í Þýskalandi.

Þýska lögreglan telur að Madeleine sé látin
„Við göngum út frá því að stúlkan sé látin,“ sagði Hans Christian Wolters, saksóknari í Þýskalandi á blaðamannafundi í dag.

Þýskur fangi grunaður um aðild að hvarfi Madeleine McCann
Þýskur fangi á fimmtugsaldri er nú grunaður um að tengjast hvarfi bresku stúlkunnar Madeleine McCann, sem ekkert hefur spurst til síðan í maí árið 2007 er hún var í fríi með fjölskyldu sinni í Portúgal.

Segja meintan barnaníðing liggja undir grun
Sky News hefur eftir portúgölskum miðlum að hinn grunaði hafi áður komið til kasta lögreglu og honum gefið að sök að hafa brotið kynferðislega á börnum.

Veita aukið fé í rannsókn á hvarfi Madeleine McCann
Fámennt teymi mun halda rannsókninni áfram.

Veita aukið fjármagn í rannsóknina á hvarfi Madeleine McCann
Innanríkisráðuneytisins segist meta það út frá samtölum við lögregluna hvort tilefni sé til aukafjárveitingar vegna rannsóknarinnar.

Halda áfram leitinni að Maddie
Til stóð að hætta leitinni um mánðarmótin en lögreglan hefur nú fengið fjárveitingu til að halda áfram.

Tíu ár frá hvarfi Madeleine McCann
Málið vakti heimsathygli og fá mannshvörf hafa hlotið viðlíka umtal og í svo langan tíma.

McCann-hjónin halda enn í vonina eftir tíu ár
Tíu árum eftir að Madeleine McCann hvarf af hótelherbergi í Portúgal eru foreldrar hennar enn vongóðir um að hún sé á lífi og að hún komi í leitirnar.

Fjórir leystir undan grun vegna hvarfs Madeleine
Breska rannsóknarlögreglan Scotland Yard segist þó enn vera með eina mikilvæga vísbendingu til rannsóknar.