Matur

Pönnusteikt rauðsprettuflök

Ingunn Mjöll Sigurðardóttir gaf okkur rauðsprettuuppskriftina sem er einföld og bragðgóð.
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir gaf okkur rauðsprettuuppskriftina sem er einföld og bragðgóð.

Sælkeraklúbbur Ingunnar er frábær síða á Facebook þar sem hægt er að nálgast fjölbreyttar mataruppskriftir. Meðfylgjandi er auðveld uppskrift af pönnusteiktri rauðsprettu með hnetujógurtsósu að hætti Ingunnar.

Aðalréttur fyrir fjóra:

800 gr rauðsprettuflök

1 epli afhýtt kjarnað og gróftsaxað

3 msk saxaðar hnetur

1 dl þurrt hvítvín

1 dós hnetujógurt

salt og pipar

Til steikingar:

2msk smjör

hveiti

2 egg

Aðferð: Flökin eru krydduð með salti og pipar,velt upp úr hveiti, siðan eggi og steikt í smjöri á pönnu sirka 1 mínútu á hvorri hlið. Þá eru flökin tekin til hliðar. Hnetunum, eplabitunum ásamt hvítvíni bætt út á og suðan látinn koma upp. Hnetujógurti blandað saman við og bragðbætt með salti og pipar. Flökin síðan færð upp á diska og hellið sósunni yfir.

Ingunn Mjöll Sigurðardóttir er með frábæra uppskriftarsíðu á Facebook.

Sjá hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.