Lánshæfismat ríkisins og þar með niðurstaða Icesavekosninga er skilyrði lánasamnings sem Landsvirkjun og Evrópski fjárfestingarbankinn skrifuðu undir í dag. Búið er að fjármagna um sjötíu prósent Búðarhálsvirkjunar.
Lánasamningurinn er að upphæð 70 milljón evrur eða um 11,3 milljarðar króna. Hann er þó háður ákveðnum skilyrðum.
„Það sem er svona óhefðbundið skilyrði er að bankinn hefur sett sem skilyrði að lánshæfi íslenska ríkisins haldist ásættanlegt að mati bankans, það þýðir það að þar sem íslenska ríkið er með frekar lágt lánshæfismat ef það yrði lækkað. Þannig bankinn yrði ekki sáttur við það þá yrði lánið í raun og veru ekki afgreitt," segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Ísland er nú þegar metið í ruslflokki hjá matsfyrirtækinu Fitch Ratins en hjá Standard & Poor's og Moody's er lánshæfið einu haki frá ruslinu. Í síðasta mánuði sagði Moody's allar líkur á því að þeir setji íslensk ríkisskuldabréf í ruslflokk fari svo að þjóðin hafni Icesave samkomulaginu. Samþykki þjóðin hins vegar samninginn er líklegast að horfum verði breytt úr neikvæðum í stöðugar. Hörður segir að Landsvirkjun muni því bíða eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar áður en dregið verði á þessi lán.
Samningurinn sem undirritaður var í dag er til tuttugu ára með hagstæðu álagi á millibankavexti. Hörður segir lánið vera mikilvægan áfanga í fjármögnun Búðarhálsvirkjunar og að svona langt lán styrki fyrirtækið fjárhagslega.
„Ef við tökum lánið sem vil tilkynntum um í síðustu viku og þetta lán, þá erum við búin að fjármagna svona 70 prósent þannig að við sjáum í land með fjármögnunina og ef þetta lán fengist afgreitt þá myndi ég segja að fjármögnunin væri nánast kláruð," segir Hörður.
Hörður segir framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun vera í fullum gangi og vonast er til að halda upphaflegri áætlun.
Niðurstaða Icesavekosninga skilyrði lánasamnings

Mest lesið

Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið
Viðskipti innlent

Bjartara yfir við opnun markaða
Viðskipti erlent

Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna
Viðskipti innlent

Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent


Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson
Viðskipti innlent

Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag
Viðskipti innlent

Hækkanir í Kauphöllinni á ný
Viðskipti innlent

Tvö hundruð konur töluðu um orkumál á KÍO-deginum
Viðskipti innlent

Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur
Viðskipti innlent