Deildarmeistaralaus lokaúrslit í fyrsta sinn í fjórtán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2011 16:45 Njarðvíkurkonur fagna hér sigri í gækvöldi. Mynd/ÓskarÓ
Njarðvíkurkonur tryggðu sér sæti í lokaúrslitum í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppni kvenna þegar þær slógu út deildarmeistara Hamars í oddaleik í Hveragerði í gærkvöldi. Þetta er aðeins í annað skiptið í 19 ára sögu úrslitakeppninnar sem deildarmeistarar komast ekki í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn en síðast gerðist það fyrir fjórtán árum. Deildarmeistararnir voru síðast slegnir út úr undanúrslitunum úrslitakeppninnar vorið 1997 þegar Grindavík sló út Keflavík. Grindavíkurstúlkur fóru síðan alla leið og unnu 3-0 sigur á KR í úrslitaeinvíginu um titilinn en það var fyrsti og eini Íslandsmeistaratitill kvennaliðs félagsins. Njarðvíkurliðið á möguleika á að endurtaka leikinn og vinna sinn fyrsta stóra titil. Það er líka þegar orðið ljóst að í fyrsta sinn í níu ár fara deildarmeistarnir ekki alla leið og vinna Íslandsmeistaratitilinn. Síðasta liðið til að verða Íslandsmeistari án þess að vinna deildina á undan var lið KR sem vann 3-2 sigur á ÍS í lokaúrslitunum 2002. Gengi deildarmeistara í úrslitakeppni kvenna 1984-2011:Íslandsmeistarar 14 (1993, 1994, 1996, 1998, 1999, 2001, 2003, 2004, 2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010)Silfurverðlaun 3 (1995, 2000, 2002)Í undanúrslit 2 (1997, 2011)
Dominos-deild kvenna Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns „Vorum að veita fría sálfræðihjálp fyrir heilt samfélag“ Sjá meira