Breytingarnar eru svakalegar (hústökuhúsið)
Vísir hefur fylgst með Söndru vinna hörðum höndum að því að gera upp húsið þrátt fyrir vægast sagt slæmt ástand og þá sorglegu staðreynd að óprúttnir aðilar köstuðu eggjum í húsið, brutust inn í það oftar en einu sinni í skjóli nætur og krotuðu fornar rúnir á veggina og ristu að auki rúnir í steypu sem var að þorna.
Afrakstur erfiðisins má sjá í meðfylgjandi myndskeiði en Sandra flutti í húsið í síðustu viku ásamt dætrum sínum tveimur.
Tengdar fréttir

Óhugnanlegar rúnir krotaðar á alla veggi
"Ég mun kæra þetta,“ segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í skjóli nætur, krotað fornar rúnir á veggina og rist að auki rúnir í steypu sem var að þorna.

Öryggismyndavélar vakta hústökuhúsið
„Ég er orðin nokkuð örugg. Mér líður allavegana betur með þetta," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en nú er búið að koma upptökuvélum í húsið.

Hreinsar viðbjóðinn úr hústökuhúsinu
Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hafðist við nokkuð lengi. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir hefur Sandra nú þegar hafist handa við að hreinsa innan úr húsinu, brjóta niður veggi og gólf en útgangurinn var vægast sagt ævintýralegur þegar hún fékk það afhent eins og sjá má hér. Sandra er staðráðin í að gera húsið upp og flytja inn í það með stelpunum sínum tveimur eftir þrjár vikur.

Eggjum kastað í hústökuhúsið
„Við vorum búin að vera hérna um helgina að gera fínt í kringum húsið og svona. Það var mjög leiðinlegt að koma að húsinu og sjá að það var búið að kasta eggjum í framhurðina," sagði Sandra Hlíf Ocares.

Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn
Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi.

Flytur inn þrátt fyrir rafmagnsleysi
Ég ætla bara að klára um helgina. Efri hæðin er nánast tilbúin, segir Sandra Hlíf Ocares.

Viðbjóðurinn nánast horfinn
Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru ætlar að flytja inn um helgina með stúlkurnar sínar tvær.