Undirbúningur forúthlutunar veiðileyfa fyrir sumarið 2012 er vel á veg kominn. Mun fyrirkomulag verða kynnt vel á komandi dögum
Umsóknartími fyrir veiðileyfi á forúthlutunartíma sumarið 2012 verður til 20. september næstkomandi. Í fyrsta sinn verður gefin út söluskrá sem einvörðungu tekur yfir þau tímabil og ársvæði sem í boði eru, og verður hún aðgengileg á rafrænu formi hér á heimasíðunni síðar í vikunni. Að auki verður tengill inn á skrána sendur öllum félagsmönnum.
Eftirfarandi ársvæði og tímabil eru til forúthlutunar:
Leirvogsá 8. Júlí – 11. ágúst
Norðurá I: 21. júní – 8. ágúst
Norðurá II: 6. júlí – 8. ágúst
Hítará I: 8. júlí – 5. ágúst
Laxá í Aðaldal-Nessvæðið: 1. júlí – 20. september
Langá á Mýrum: 3. Júlí – 24. Ágúst
Laxá í Laxárdal 31. Maí - 31.ágúst
Laxá í Mývatnssveit 31. Maí - 31.ágúst
Straumar 23. Júní – 4. ágúst
Laxa í Dölum 15. júlí - 23. ágúst
Að lokinni úthlutun þarf að greiða staðfestingargjald (25%) af verði veiðileyfa. Verðskrá liggur fyrir hjá SVFR.
Í forúthlutun gildir sama verð fyrir alla og því er ekki um afslátt til félagsmanna að ræða. Félagsmenn þurfa ekki að nota A-umsókn sína í forúthlutun. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn til að sækja um veiðidaga á forúthlutunartíma. Tekið verður við umsóknum frá og með 1. september næstkomandi á netfanginu halli@svfr.is

