Atli og Gísli Páll bera af sér sakir - Jóhann Helgi vill ekki tjá sig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2011 13:00 Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðs Íslands. Mynd/Vilhelm
Þórsararnir Atli Sigurjónsson og Gísli Páll Helgason segja það alrangt að Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðs karla, hafi gefið þeim þau skilaboð að þeir ættu ekki möguleika á sæti í liðinu á meðan þeir væru hjá 1. deildarliði. Jóhann Helgi Hannesson vildi ekki tjá sig um málið. Þetta hafði Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, eftir sínum leikmönnum sem hann nafngreindi reyndar ekki í viðtali á Fótbolti.net. „Það eru orð sem ég hef eftir þeim, að þeir hafi fengið skýr skilaboð frá U-21 árs landsliðsþjálfaranum,“ er haft eftir Páli Viðari. Eyjólfur sagði svo síðar við sama miðil að þetta væri alrangt. Vísir hafði samband við þá þrjá leikmenn Þórs sem Eyjólfur hefur valið í U-21 landsliðið á þessu ári - þá Atla, Gísla Pál og Jóhann Helga. Þeir tveir fyrstnefndu könnuðust ekki við að hafa sagt Páli Viðari þetta. Allir þrír leikmenn duttu úr landsliðshópi U-21 liðsins fyrir leiknn gegn Englandi ytra í síðustu viku. „Það kom mér á óvart að lesa þetta. Ég man ekki eftir því að hann [Eyjólfur] hafi sagt þetta,“ sagði Gísli Páll. Atli tók í sama streng. „Þetta er ekki frá mér komið og er væntanlega misskilningur. Ég veit ekki hvaðan Palli [Páll Viðar] hefur þetta.“ Gísli Páll ætlaði að hafa samband við Eyjólf vegna þessa. „Það er eins og að við séum reiðir út í hann [Eyjólf] sem er alls ekki rétt. Það er 100 prósent klárt að þetta sagði ég aldrei við Palla.“ Jóhann Helgi baðst undan viðtali þegar Vísir hafði samband við hann. Smelltu hér og hér til að lesa fréttir Fótbolta.net um málið.
Íslenski boltinn Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Formúla 1 Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig Sjá meira