Skoraði snertimark í NFL með því að taka heljarstökk yfir mótherja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. desember 2011 16:00
Jerome Simpson stökk heljastökk inn í fyrirsagnirnar í 23-16 sigri Cincinnati Bengals á Arizona Cardinals í ameríska fótboltanum í gær. Hann gerði nánast út um leikinn með einu magnaðast snertimarki sem hefur verið skorað á þessu tímabili. Staðan var 10-0 fyrir Cincinnati í öðrum leikhluta þegar leikstjórnandinn Andy Dalton fann Simpson frían út á kanti. Simpson keyrði í átt að markinu en í veg fyrir honum stóð varnarmaðurinn Daryl Washington sem er 188 sm og 106 kg. Í stað þess að keyra inn í Daryl Washington reyndi hann þess í stað heljarstökk yfir hann sem heppnaðist fullkomlega. Simpson lenti á báðum fótum með boltann í hendinni og þetta snertimark kom Cincinnati í 16-0 í leiknum.Mynd/AP„Ó, guð minn góður. Hann hefði fengið tíu fyrir þetta stökk á Ólumpíuleikunum. Hvernig fór hann eiginlega að þessu," sagði lýsandinn á Fox Sports. það er hægt að sjá þessu mögnuðu tilþrif með því að smella hér fyrir ofan. Þetta er eitt allra flottasta snertimark tímabilsins og uppreisn æru fyrir Jerome Simpson sem hefur verið í vandræðum innan sem utan vallar.
NFL Mest lesið Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Körfubolti Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Íslenski boltinn Besta-spáin 2025: Litað út fyrir Íslenski boltinn Fimm fengu bann fyrir slagsmálin Körfubolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einn besti dómari landsins fær ekki leik Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Félögin spá Víkingum titlinum Segir að það hafi ekki verið mistök að selja Elanga Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Skelltu lærisveinum Alonso og ótrúlegt bikarævintýri heldur áfram Besta-spáin 2025: Litað út fyrir Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 „Eins og draumur að rætast“ „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Fimm fengu bann fyrir slagsmálin Dagskráin í dag: Úrslitakeppni karla hefst „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Íslendingalið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar Uppgjörið: Þór - Valur 86-92 | Sterkur sigur sóttur í fyrsta leik Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Pelikanarnir búnir að gefast upp „Búin að taka mig inn í fjölskylduna“ Úthúðar þjálfaranum: Fékk betri æfingar í flóttamannabúðunum Sjá meira