Barcelona og Real Madrid með vænlega stöðu Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 26. janúar 2011 23:45 Lionel Messi skoraði tvívegis fyrir Börsunga á fyrstu 15. mínútum leiksins. David Villa og Pedro bættu einnig við mörkum í fyrri hálfleik og Seydou Keita skoraði fimmta markið á 89. mínútu. Nordic Photos/Getty Images
Risarnir í spænska fótboltanum, Barcelona og Real Madrid, eru skrefi nær úrslitaleik spænska konungsbikarsins en fyrri leikirnir í undanúrslitum keppninnar fóru fram í kvöld. Barcelona lék sér að Almeria og 5-0 sigur liðsins var síst of stór. Karim Benzema tryggði Real Madrid sigur með marki á 17. mínútu á útivelli gegn Sevilla. Síðari leikurinn er nánast formsatriði fyrir Barcelona og Real Madrid á heimaleikinn eftir. Lionel Messi skoraði tvívegis fyrir Börsunga á fyrstu 15. mínútum leiksins. David Villa og Pedro bættu einnig við mörkum í fyrri hálfleik og Seydou Keita skoraði fimmta markið á 89. mínútu. Það var heitt í kolunum á Sanchez Pizjuan leikvanginum í Sevilla. Gulu spjöldin voru ítrekuð dregin upp úr vasa dómarans. Iker Casillas markvörður Real Madrid fékk að kenna á því og fékk hann högg á höfuðið þegar aðskotahlut var kastað í hann úr áhorfendasvæðinu. Luis Fabiano virtist ná að jafna metin fyrir Sevilla rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en Raul Albiol náði að sparka boltanum í burtu frá markinu - en sjónvarpsupptökur sýndu að boltinn var greinilega kominn yfir marklínuna. Það eru miklar líkur á því að Real Madrid og Barcelona mætist í úrslitaleiknum. Real Madrid hefur ekki sigrað í bikarkeppninni frá árinu 1993 og Jose Mourinho ætlar sér eflaust að breyta þeirri staðreynd.
Spænski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Handbolti Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Enski boltinn Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Sjá meira