Heimsfrumsýning á Youtube 12. júlí 2011 16:00 Nýjasta myndband söngkonunnar verður frumsýnt á Youtube seinna í mánuðinum.
Björk Guðmundsdóttir heimsfrumsýnir myndband við nýjasta lagið sitt, Crystalline, á síðunni Youtube í lok mánaðarins. Þetta verður í fyrsta sinn sem hún frumsýnir myndband á Youtube og bíða aðdáendur hennar spenntir eftir útkomunni. Leikstjóri er Frakkinn Michael Gondry, samstarfsmaður Bjarkar til margra ára. „Hún er vön að gera rosaleg myndbönd og þetta er brjálæðislegt,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves-hátíðarinnar, sem sá myndbandið fyrir skömmu. Björk er þessa dagana að kynna væntanlega plötu sína og hefur hún verið dugleg að veita erlendum fjölmiðlum viðtöl, þar á meðal tímaritunum Dazed and Confused og Wired þar sem hún prýðir forsíðurnar. Söngkonan mætir á Airwaves-hátíðina um miðjan október með tvenna Biohpilia-tónleika í farteskinu og heldur svo ferna til viðbótar, alla í Hörpunni. Hingað til hefur hún aðeins stigið á svið á menningarhátíðinni í Manchester við frábærar undirtektir. „Þetta verður væntanlega flóknasta og flottasta uppsetning sem hefur verið gerð hér á landi, með fullri virðingu fyrir Clapton-tónleikunum sem ég hélt,“ segir Grímur. Almenn miðasala á tónleikana hefst fimmtudaginn 14. júlí kl. 12 á Icelandairwaves.is og Harpa.is. Aðeins 700 manns komast á hverja tónleika. -fb
Björk Mest lesið Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Tíska og hönnun Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Menning Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Lífið Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Lífið Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Lífið Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Fleiri fréttir Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira