Metnaður skilar árangri 9. ágúst 2011 12:23 Aðalbjörg Einarsdóttir, naglafræðingur og skólastjóri Naglaskóla Professionails. Mynd/GVA
Naglaskóli Professionails er alþjóðlegur skóli sem er starfræktur í húsnæði Snyrtiakademíunnar að Hjallabrekku 1 í Kópavogi. „Hér er metnaður í hávegum hafður. Nemendur læra í raun um allt sem við kemur nöglum, ásetningu gervinagla, umhirðu nagla og naglasjúkdóma auk þess sem áhersla er lögð á verndun náttúrulegra nagla, það er lykilatriði," segir Aðalbjörg Einarsdóttir, naglafræðingur og skólastjóri Naglaskóla Professionails, að Hjallabrekku 1 í Kópavogi. Naglaskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1998 og útskrifað hundruð naglafræðinga síðan þá. „Þetta er diplómanám sem er kennt á miðvikudögum allt árið um kring," útskýrir Aðalbjörg og getur þess að í raun sé svolítið undir hverjum og einum komið hversu langan tíma námið taki. „Það fer bara meðal annars eftir því hvað fólk er duglegt að æfa sig heima." Skólinn sækir heiti sitt til Profsessionails sem er belgískt vörumerki. „Það er virt um allan heim og fyrir löngu búið að sanna sig, enda spannar saga þess 30 ár," bendir Aðalbjörg á og bætir við að útskrifaðir naglafræðingar frá skólanum á Íslandi hafi sjálfkrafa aukna möguleika á ráðningu hjá stofum sem starfa undir merkjum þess. „Og þær eru um nánast alla heim." Engin inntökuskilyrði eru í Naglaskólann önnur en sextán ára lágmarksaldur og hafsjór af þolinmæði að sögn Aðalbjargar. „Listrænir hæfileikar eru aukaatriði, hér skiptir fyrst og fremst máli að vera þolinmóður, nákvæmur og með gott auga." Aðalbjörg getur þess að ýmsir skipulagðir viðburðir séu síðan á vegum skólans. Fyrr á árinu stóðu forsvarsmenn hans til að mynda fyrir Íslandsmeistaramóti í naglaásetningu og fantasíu sem var endurvakin eftir hlé. „Og það er svolítið skemmtilegt að segja frá því að í fyrsta skipti þegar keppnin var haldin fór sigurvegarinn til alþjóðlegrar keppni í London. Það er því alveg óhætt að segja að hér sé fullt af spennandi hlutum að gerast," segir hún glaðbeitt. Allar nánari upplýsingar í síma 588 8300 og á Facebook.
Sérblöð Mest lesið Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Neytendur Spotify liggur niðri Neytendur Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Viðskipti innlent Tímamótasamkomulag um að draga úr losun skipaflotans Viðskipti erlent Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Hækka verð á PS5 í Evrópu vegna „krefjandi“ umhverfis Neytendur Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Atvinnulíf Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Sjá meira