Hann segir persónulegar myndir á striga, eins og af börnum, mjög vinsælar. „Það er hægt að prenta mjög stórar myndir á striga en algengasta stærðin er 30x40 cm. Annars eru nánast engin takmörk á stærðinni. Þessar myndir eru mjög vinsælar til jólagjafa, eins og til ömmu og afa og fólk vill gjarnan eiga slíkar myndir af börnunum sínum."
Gjafavaran hjá Samskiptum er einstaklega skemmtileg, bæði til tækifærisgjafa en ekki síður til jólagjafa. „Það gleður mömmur og ömmur sérstaklega að fá kerti með mynd af barninu eða barnabarninu sínu. Þær tíma bara yfirleitt ekki að kveikja á því," segir Þórður Mar og brosir.
„Það er miklu skemmtilegra fyrir fjölskylduna að púsla saman mynd af einhverjum fjölskyldumeðlim heldur en landslagi. Þá má ekki gleyma myndadagatalinu sem alltaf slær í gegn."
Samskipti er líka með segulmottur á ísskápinn. „Það er um að gera að nota hugmyndaflugið til að skreyta þær með myndum, skemmtilegum texta eða nánast hverju sem er. Mig langar einnig að minnast á myndabækurnar sem njóta mikilla vinsælda. Fólk notar þær oft til að minna sig á merka viðburði í lífi sínu eins til dæmis annáll ársins 2011, sumarið 2011, brúðkaupið 2011 eða verslunarmannahelgin 2011."
