Árlegur Food&Fun matseðill Perlunnar verður að þessu sinni útbúinn af matreiðslumeistaranum Philippe Girardon. Food&Fun hófst á hlaupársdag 29. febrúar og lýkur sunnudaginn 4. mars.
Philippe Girardon er eigandi og yfirmatreiðslumaður Michelin-stjörnu veitingastaðarins Domaine de Clairefontaine fyrir sunnan Lyon í Frakklandi.
Philippe hefur stjórnað Domaine de Clairefontaine frá árinu 1983. Árið 1997 fékk hann titilinn Meilleur Ouvrier de France (besti fagmaður Frakklands) og árið 1999 var hann valinn framtíðarvon franskrar matreiðslu „Champérard“. Philippe er mikill Íslandsvinur og hefur tekið þátt í að þjálfa flest alla íslenska matreiðslumeistara sem hafa tekið þátt í hinni heimsþekktu Paul Bocuse keppni.
Matseðill Perlunnar á Food&Fun
Humar- og krabbamósaík í sítrónumelis hlaupi, með austurlenskum salathjörtum
Ljós hörpudiskur og tómata crème brûlée með jómfrúarsósu
Steiktur Lambabógur „confit“ með grænmetis-cannelloni og kryddjurtasafa
Croque-monsieur fourme d‘Ambert/Mascarpone
Súkkulaði-Stradivarius með „Pur Caraïbes“ súkkulaði, járnjurtaís og ristaðar hnetur
