Fréttamennirnir Þorbjörn Þórðarson og Breki Logason fylgjast með framvindu mála í Landsdómi í beinum sjónvarpsútsendingum á Vísi í allan dag.
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá síðustu samantekt þeirra þar sem þeir fara yfir stöðuna klukkan 15 og þegar Sigurjón Þ. Árnason mætir í Þjóðmenningarhúsið.
Hægt er að horfa á það hér fyrir ofan og á sjónvarpssíðu Vísis.

