Skoðun

Stuðningsgrein: Mannasætti á Bessastaði

Róbert Ragnarsson skrifar
Við erum fámenn þjóð og einsleit. Hagsmunir Íslendinga eru í meginatriðum þeir sömu og við erum sammála um megin gildi samfélagsins. Að sjálfsögðu greinir fólk á um útfærslur, en þar liggur einmitt möguleiki til sátta. Við ætlum öll á sama áfangastað, en erum ekki sammála um hvaða leið eigi að fara og í hvaða sjoppu eigi að stoppa.

Þrátt fyrir það hafa stjórnmálamenn og einstaka hagsmunaaðilar náð að stýra orðræðunni þannig að hún er uppfull af gífuryrðum og elur á vantrausti. Á vettvangi stjórnmálanna, sérstaklega á alþingi, skiptir mestu að taka sem dýpst í árinni og hlusta alls ekki á önnur sjónarmið en þau sem eru manni þóknanleg. Allir stjórnmálaflokkarnir bera þar mikla ábyrgð, og gjalda fyrir með því að aðeins 10% þjóðarinnar treystir alþingismönnum. Við þurfum einhvern sem við getum treyst og skilur að í öllum meginatriðum erum við sammála. Einhvern sem getur skapað farveg fyrir sátt milli ólíkra sjónarmiða, en elur ekki á vantrausti. Leiðsögumann sem kemur öllum á áfangastað. Ég ætla að kjósa þannig forseta.

Þóra Arnórsdóttir er ung kona sem er að takast á við sömu verkefni og mjög margir íslendingar, þ.e. að sinna fjölskyldu og reka heimili samhliða því að vera í krefjandi starfi. Ég held við þurfum forseta sem skilur þjóð sína og þær áskoranir sem hún stendur frammi fyrir.

Þóra hefur numið heimspeki og alþjóðastjórnmál, en báðar greinar undirbúa fólk undir að skilja umhverfi sitt betur. Skilja eðli mannsins, siðferði hans og hvatir og geta sett sig inn í málefni mismunandi ríkja til að geta greint hagsmuni og fundið leiðir til sátta. Ég efast um að margir átti sig á því að John Hopkins er mjög eftirsóttur skóli, ekki síst meðal háttsettra embættismanna sem starfa við stefnumótun í utanríkismálum sinna ríkja.

Þóra hefur starfað sem leiðsögumaður og þekkir því landið okkar vel og er umhugað um náttúruna. Hún er afskaplega vel máli farin og talar nokkur tungumál. Áhorfendur sjónvarpsins hafa séð hana bregða fyrir sig mismunandi tungumálum í viðtölum og farast það vel úr hendi.

Sem fjölmiðlakona hefur Þóra öðlast reynslu í því að hlusta frekar en grípa frammí. Að geta hlustað, greint og sett sig í spor annarra eru mikilvægir eiginleikar fjölmiðlakonunnar ekki síður en forsetans. Að sama skapi er mikilvægt að forsetinn sé fjölfróður, þekki til margra hluta og geti skilið milli aðalatriða og aukaatriða. Auk þess að hafa verið kennari og leiðsögumaður hefur Þóra unnið fjölda frétta um fjölbreytt mál og gert vandaða heimildaþætti, m.a. um bankahrunið. Er því með sanni hægt að segja að hún sé fjölfróð og vel undirbúin að takast á við embætti forseta.

Þóra leggur áherslu á að forseti Íslands sé merkisberi Íslands úti í heimi og sameiningarafl inn á við. Að hann sé fulltrúi allrar þjóðarinnar, ekki bara þeirra sem eru sammála honum.

Ég styð Þóru því ég deili sýn hennar á hlutverk forseta, þ.e. að forsetinn eigi að skapa farveg fyrir þá sátt sem nauðsynleg er á Íslandi í dag.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×