Tvítugur karlmaður sem skaut tuttugu börn og sjö fullorðna til bana í grunnskólanum Sandy Hook í bænum Newtown í Connecticut í Bandaríkjum í gærmorgun er talinn hafa undirbúið sig fyrir vel fjöldamorðin áður en hann lét til skara skríða. Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa fordæmt árásina en nöfn hinna látnu verða væntanlega birt í dag.
Mörg hundruð sóttu í gærkvöldi minningarathöfn um hina látnu sem haldin var í kaþólsku kirkjunni í Newton. Íbúar bæjarins eru harmi slegnir en þar búa einungis tuttugu og sjö þúsund og því þekktu margir fórnarlömbin persónulega. Fjöldi kom einnig saman fyrir utan Hvíta húsið til að minnast þeirra sem létust en fólkið krafðist að Barack Obama forseti myndi beita sér fyrir því að herða lög um byssueign í landinu. Í ávarpi í gærkvöldi sagði Obama, með tárin í augunum, að bandaríska þjóðina hefði upplifað alltof marga harmleiki líkt og fjöldamorðin í gær og að stjórnvöld yrðu nú að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig, allir yrðu að vinna sama og að pólitíkin mætti ekki koma í veg fyrir þá vinnu.
Nöfn hinna látnu hafa enn ekki verið birt en búist er við að lögregla birti þau í dag. Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa fordæmt árásina og vottað ættingjum og vinum hinna látnu samúð sína. Ban ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir það óhugsandi og svívirðilegt að hópur barna hafi verið skotmark árásarmannsins.
Það var hinn tuttugu ára gamli Adam Lanza, fyrrverandi nemandi við grunnskólann Sandy Hook, sem gekk þar inn í skotheldu vesti með að minnsta kosti þrjár byssur og hóf að skjóta á nemendur og kennara áður en hann féll fyrir eigin hendi. Skotvopnin voru skráð á móður hans, leikskólakennara við Sandy Hook, en Lanza er grunaður um að hafa skotið hana til bana á heimili þeirra, áður en hann ók á bíl hennar í skólann. Skotárásin stóð yfir í nokkrar mínútur og myrti Lanza alla þá sem hann skaut fyrir utan einn sem nú er á sjúkrahúsi. Lögreglan segir þetta bera þess merki að árásarmaðurinn hafi skipulagt ódæðisverkin vel.
Lanza er lýst sem mjög velgefnum en jafnframt ákaflega feimnum og mannfælnum. Bróðir hans hefur sagt í viðtölum við lögregluna að Lanza hafi þjáðst af persónuleikaröskunum og einhverfu. Honum gekk hinsvegar vel í námi sínu í menntaskóla og hafði unnið til nokkrru verðlauna fyrir námsárangur sinn.