Skref fyrir skref: Einföld en glæsileg greiðsla fyrir árshátíðina 16. mars 2012 15:30
Hér fylgja leiðbeiningar að einfaldri en glæsilegri greiðslu fyrir árshátíðina í boði Trevor Sorbie.Fyrir: Hárið var undirbúið vel með því að þvo það upp úr Trevor Sorbie Ice Cool Platinum sjampói og næringu. Ice Cool Platinum sjampóið hentar ljósu hári einkar vel, gefur mikla næringu og kemur í veg fyrir gula slikju sem gjarnan getur myndast í hárlit.1. Eftir að búið er að þurrka hárið er gott að blása það upp úr Beautiful Volume Boosternum sem gefur góða fyllingu ásamt því að veita vörn gegn hita hárblásarans. Þá er gott að nota Boosterinn og blása gróflega upp á móti rótinni til að fá smá lyftingu í rótina áður en hafist er handa við krullurnar.2. Til þess að krullurnar verði sem fallegastar er hentugt að skipta hárinu í tvennt, frá miðju enni og aftur á hnakka. Byrja svo að krulla aðra hliðina og svo hina. Til þess að krullurnar falli sem best saman og verði ein flott heild er sniðugt að krulla vinstri hliðina í átt miðju hnakkans og eins hægri hliðina, en þá í hina áttina. Til þess að ná fram fallega krulluðum lokk er gott að koma sléttujárninu fyrir um ½ -1 cm frá rótinni. Gæta verður þess að klemma sléttujárnið ekki of fast saman. Því næst er sléttujárninu snúið 180° í þá átt sem lokkurinn á að krullast og sléttujárnið togað rólega í gegnum lokkinn um leið.Gott ráð: Til að vernda hárið gegn hitaskemmdum af völdum sléttujárnsins er tilvalið að spreyja yfir hárið Trevor Sorbie Flatten, protect and shine spreyinu.3. Til þess að klára greiðsluna og gera hana náttúrulega og fallega er byrjað á því að spreyja yfir allt hárið Trevor Sorbie Dry sjampói. Að því loknu er mjög gott að túbera örlítið rótina og loka þannig skiptingum til þess að krullurnar blandist betur og skiptingar verði ekki sjáanlegar. Að lokum er svo tilvalið að spreyja aðeins yfir hárið Beautiful Volume hárspreyinu til þess að greiðslan haldist sem lengst.
Heilsa Mest lesið „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Gerðu tungumálarassíu hjá reiðhjólaverslunum Neytendur Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda Atvinnulíf Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar Atvinnulíf BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum Viðskipti innlent Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Viðskipti innlent „Þetta er afnotagjald“ Viðskipti innlent Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Viðskipti innlent Fleiri fréttir BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira