

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Sjávarútvegur hefur verið, og er enn, ein mikilvægasta efnahagsstoð þjóðarbúsins og meðfram strandlengjunni allri eru byggðalög sem reiða sig nánast eingöngu á veiðar og vinnslu. Með stofnun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga er horft til þess að skapa öflugan sameiginlegan vettvang til sóknar og varnar fyrir sjávarútvegssamfélögin. Fyrstu verkefni samtakanna beinast einkum að tvennu; að sjávarútvegssveitarfélögin fái eðlilega hlutdeild í sérstaka veiðigjaldinu og að þeim störfum á vegum ríkisins sem tengjast nýtingu sjávarauðlindarinnar verði í ríkari mæli komið fyrir á sjávarútvegsstöðunum.
Því fólki sem hefur beina atvinnu af veiðum og vinnslu sjávarafla hefur fækkað alla síðustu öld. Tækniframfarir og lagabreytingar sem leitt hafa af sér kröfu um aukna hagræðingu í greininni hafa haft afgerandi áhrif á fjölda starfa í veiðum og vinnslu, og þá jafnframt á íbúafjölda og stöðu sjávarútvegssamfélaganna. Þessar breytingar hafa verið einn stærsti áhrifavaldur í byggðaþróun undanfarinna áratuga. Ný störf s.s. þekkingarstörf, rannsóknir og eftirlit, sem orðið hafa til við þessar breytingar, hafa ekki að sama skapi orðið til á sjávarútvegsstöðunum og hafa slík störf á vegum ríkisins haft tilhneigingu til að hnappast saman á höfuðborgarsvæðinu. Með lögum um sérstakt veiðigjald er nú enn hert á kröfunni um hagræðingu í greininni. Til þess að sjávarútvegssveitarfélögin geti brugðist við þeim breytingum sem aukinni hagræðingarkröfu fylgja, svo sem enn frekari fækkun starfa, er eðlilegt að þau fái hlutdeild í sérstaka veiðigjaldinu.
Einnig hefur verið bent á að geta sjávarútvegsfyrirtækjanna til vaxtar og/eða þátttöku í verkefnum í heimabyggð skerðist við upptöku sérstaka veiðigjaldsins. Krafa um aukna hagræðingu kalli fremur á sameiningu fyrirtækja og fækkun starfa. Það er því mikilvægt að nú sé einnig hugað alvarlega að því að þau störf á vegum ríkisins sem eru sjávarútvegstengd séu sett niður víðar um landið. Með nýtingu samskiptatækni ætti slíkt að vera einfaldara en áður.
Það er hagur þjóðarinnar að íslenskur sjávarútvegur sé rekinn með hagkvæmum hætti, en það eru sjávarbyggðirnar sem greiða fyrir hagræðinguna með fækkun starfa, fækkun íbúa, lækkun fasteignaverðs o.s.frv. Það er því mikilvægt að sjávarútvegssveitarfélögin og ríkisvaldið taki höndum saman um að lágmarka þau áhrif sem enn aukin krafa um hagræðingu í greininni mun hafa.
Skoðun

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar