Skoðun

Skipulag í Reykjavík

Páll Hjaltason og Hjálmar Sveinsson skrifar
Síðastliðinn fimmtudag skrifaði Arna Mathiesen arkitekt grein í Fréttablaðið um skipulagsmál og spurði skipulagsyfirvöld í Reykjavík nokkurra spurninga. Áhugi Örnu á skipulagsmálum í Reykjavík er lofsverður. Okkur er bæði ljúft og skylt að bregðast við.

Einn mikilvægasti þátturinn í nýju Aðalskipulagi Reykjavíkur er að leiðrétta misræmið sem er á milli austurhluta borgarinnar, þar sem flestir búa, og vesturborgarinnar, þar sem flestir vinna. Þetta ójafnvægi hefur í för með sér mikið umferðarálag kvölds og morgna þar sem umferðin fer að mestu í aðra átt og nýtir gatnakerfið því illa. Lausnin er einföld, fjölga íbúðahúsnæði í vesturhlutanum og falla frá uppbyggingu nýrra úthverfa í austurborginni.

Eitt mikilvægasta leiðarstefið í nýju Aðalskipulagi er félagsleg blöndun. Uppbygging við Gömlu Höfnina er einungis lítill hluti af þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er í vesturhluta borgarinnar. Áhersla á litlar íbúðir útilokar ekki að stærri íbúðir verði byggðar. Þó er ljóst að mesta þörfin núna er á litlum íbúðum miðsvæðis. Borgaryfirvöld verða að bregðast við því.

Það er ekki stefnt að því að byggja á útivistarsvæðum borgarinnar, svo sem gömlum gæsluvöllum. Þétting byggðarinnar er hugsuð á óbyggðum lóðum og því borgarlandi sem er illa nýtt, svo sem veghelgunarsvæðum, bílastæðum og gömlum athafnasvæðum.

Engin ný úthverfi verða byggð í Reykjavík sem íbúabyggð. Vissulega verður áfram gert ráð fyrir plássfreku athafnasvæði austan við íbúasvæðið, á Esjumelum, Álfsnesi og Hólmsheiði. Uppbygging atvinnuhúsnæðis í austurbænum styður markmið aðalskipulagsins um að dreifa umferðarálagi.

Skipulag Austurhafnarinnar við Hörpu liggur fyrir. Ein af forsendum fyrir rekstri ráðstefnuhluta hússins er að við hlið þess verði byggt hótel, rekið undir alþjóðlegu vörumerki. Það er mikilvægt að koma rekstri Hörpunnar í gott horf og óþarfi að óttast að þetta glæsilega hús hverfi úr bæjarmyndinni þó að byggt verði vestan við það.

Í vetur verður unnið Hverfisskipulag fyrir 8 borgarhluta Reykjavíkur þar sem mikil áhersla verður lögð á samráð og kynningar. Þá mun öllum borgarbúum gefast tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum er varða framtíð síns hverfis.


Tengdar fréttir

Að stjórna skipulagi

Fagna ber nýlegum pistli ráðamanns hjá Reykjavíkurborg um góð tengsl borgar og sjávar. Gott ef Geirsgata verður gerð að borgargötu og bílum þannig verði gert minna hátt undir höfði í borgarmyndinni. Tilvísun í skala gamla bæjarins fyrir nýbyggingar, og endurnýting gamalla bygginga í miðbænum er til fyrirmyndar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×