

Fjölmenningin blómstrar á Íslandi
Í Reykjavík einni býr fólk af 130 þjóðernum. "Þetta er tilbreyting sem reynir meira á hæfni okkar sem fólks til samskipta," sagði Jón Gnarr borgarstjóri í viðtali við Fréttablaðið í síðasta mánuði. Hann sagði okkur hér á landi ekki undanskilin breytingum á samfélagsmynd flestra nútímasamfélaga, en þau verða æ fjölmenningarlegri. "Ég fagna því að við séum þátttakendur í fjölmenningunni og tökum vel á móti fólki sem vill búa hér," sagði borgarstjórinn.
Jón Gnarr er borgarstjóri í borg sem hefur álíka hátt hlutfall innflytjenda og Kaupmannahöfn. Einn af hverjum tíu Reykvíkingum er innflytjandi. Samt hafa innflytjendur hér í borg ekki átt í sömu erfiðleikum og nýir borgarar Kaupmannahafnar. Þar hafa oft brotist út óeirðir og í Danmörku hafa stjórnmálaflokkar meira að segja sótt mikið fylgi frá kjósendum út á hatur gegn útlendingum.
Við erum blessunarlega laus við vandræði nágrannaþjóða okkar þegar kemur að innflytjendum á Íslandi. Hér leggjast allir á eitt, yngri sem eldri Íslendingar, við að byggja hér upp fallegt fjölmenningarsamfélag.
Pólverjar eru stærsti innflytjendahópurinn hér á landi. Í Fréttablaðinu í dag er skemmtilegt viðtal við Aleksöndru Wójtowicz, sem starfar sem lögreglufulltrúi við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Hún flutti til Íslands átján ára gömul fyrir sautján árum þegar hér voru einungis um sex þúsund innflytjendur. Síðan þá hefur hún líkt og svo margir aðrir Íslendingar unnið í fiski og á leikskóla en er nú lögreglufulltrúi.
Á vordögum fékk hópur ungra Pólverja sem kalla sig Projekt Polska samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í flokknum Til atlögu gegn fordómum. Ungu krakkarnir sem mynda þann hóp vilja sjálfir axla ábyrgð á því að bæta hag sinn hér á landi. Þeir vinna að aðlögun og bættum aðstæðum innflytjenda og vilja að auki kynna íslenska menningu í Póllandi og pólska menningu hér á landi.
Stundum heyrum við frásagnir af fordómum og hatri í garð útlendinga á Íslandi. Slíkt ber að taka mjög alvarlega og á ekki að líðast. Við megum samt ekki gleyma að minnast á það sem vel hefur heppnast. Fjölmenningin blómstrar á Íslandi og við höfum nær öll tekið henni fagnandi líkt og borgarstjórinn í Reykjavík. Við eigum að vera stolt ef fólk vill flytja hingað og freista gæfunnar. Það er gott að búa á Íslandi og við eigum að bjóða það fólk sem hingað vill flytja velkomið. Ótti við útlendinga er ástæðulaus.
Skoðun

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar