Matur

Ebba gerir jarðaberjaís án sykurs

Ellý Ármanns skrifar

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Ebbu Guðný Guðmundsdóttur matgæðing útbúa heilsusamlegan jarðaberjaís með Steviu sætu í stað sykurs. Ebba er snillingur á sínu sviði og hér gerir hún einstaklega bragðgóðan og svalandi sumarís.

Jarðarberjaís

300g lífræn frosin jarðarber

1 stór þroskaður banani (eða 2 litlir)

10-15 dropar hindberja-, greip- eða vanillu Via-Health stevia

60ml vatn

5-7 msk þeyttur rjómi

Setjið frosin jarðarberin í matvinnsluvél og látið þau standa þar í um 20 mínútur til að ná mesta frostinu úr þeim. Blandið svo vel saman berjum, banana, steviu og vatni. Blandið berja- og bananablöndunni varlega saman við þeytta rjómann. Frystið í stóru móti eða í mörgum litlum frostpinnaformum. 

Hér má sjá Ebbu elda dásamlegar múffukökur.

Matarsíða Visis.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.