Matur

Marspiankonfekt með möndlumjöli

Marín Manda skrifar
Þeir eru gómsætir þessir marsipan konfektmolar.
Þeir eru gómsætir þessir marsipan konfektmolar.

María Krista Hreiðarsdóttir er hér með girnilega uppskrift af konfektmolum með Sukrin Melis, stevíudropum og möndlumjöli. 

Marspiankonfekt

130 gr Funksjonell möndlumjöl

90 gr Sukrin Melis

2 dl eggjahvítur

1 tsk möndludropar

10 stevíudropar Vanillu

50 gr 85% Rapunzel súkkulaði



Hrærið öllu vel saman í skál, mótið litlar kúlur úr marsipaninu og kælið. Hægt að hjúpa með 85% súkkulaði, velta svo upp úr kókosmjöli, muldum macadamiuhnetum eða hverju sem er. Hálf pecanhneta er líka voðalega sæt á einn mola. Einnig er hægt að fletja út marsipanið og nota á tertur. Gott er að bragðbæta marspipanið t.d. með rommdropum, blanda muldum hnetum í marsipanið og svo mætti lengi telja.

Fullkomnir konfektmolar með kaffinu.

Kókosjöklar

80 gr kókosolía kaldpressuð Himnesk hollusta

80 gr kókosmjólk eða kókosrjómi ISOLA

100 gr Sukrin Melis Funksjonell

200 gr grófmalað kókosmjöl NOW

10 stevíudropar Vanillu

50 gr 85 % Rapunzel súkkulaði

Hitið kókosolíu, kókosmjólk/kókosrjóma og Sukrin Melis í potti þar til allt er bráðnað. Hellið kókosmjölinu út í og hrærið vel saman. Setjið annaðhvort í form og frystið í hálftíma og skerið svo niður eða setjið í silikonkonfektform sem þið takið beint úr forminu og húðið með súkkulaði.

Hitið súkkulaðið í  vatnsbaði eða þar til gerðum súkkulaðipotti, má alveg bragðbæta það t.d með piparmyntustevíudropum 4-5 og hræra áður en þið húðið. Passlegt er að dýfa jafnvel helmingnum af konfektinu í súkkulaði og þá líta molarnir út eins og jöklar.  








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.