Þeir viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs sem fóru í gegnum 110 prósenta leiðina, fá meira leiðrétt með skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar en viðskiptavinir bankanna, þar sem strangari frádráttarviðmið giltu við útfærslu 110 prósenta leiðarinnar hjá sjóðnum.
Við útfærslu á 110 prósent leiðinni þurftu viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs að sætta sig við strangari frádráttarreglur en viðskiptavinir stóru bankanna þriggja. Þannig þurftu þeir að þola að skráðir bílar og annað lausafé yrði dregið frá þeirri fjárhæð sem þeir áttu að njóta við niðurfærslu lána sinna.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og fyrrum efnahagsráðherra, gagnrýndi útfærsluna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld og sagði það mikið óréttlæti að viðskiptavinir ÍLS hafi þurft að þola strangari frádráttarreglur vegna lausafjáreigna. Hann sagðist telja það eðlilegt að ÍLS yrði veitt svigrúm til að koma til móts við þessa einstaklinga. 110 prósenta leiðin var aðgerð sem ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna stóð fyrir. Ekki er víst að koma þurfi til þess að fjármagna ÍLS sérstaklega vegna þessa óréttlætis.
Eins og sést á þessari grafík á Íbúðalánasjóður langstærstan hluta kökunnar þegar verðtryggðu lánin eru annars vegar. Lífeyrissjóðir eiga 16 prósent, Landsbankinn 8 prósent, Arion banki, Íslandsbanki og fleiri deila með sér 14 prósentum. Íbúðalánasjóður er með 62 prósent.
Inneign umsækjanda leiðréttingar á verðtryggðum fasteignaveðlánum sem gerðar eru í tengslum við sértæka skuldaaðlögum dragast frá leiðréttingunni núna. Hið sama á við um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána á grundvelli 110 prósenta leiðar.
Ljóst er að þeir viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs sem fengu lítið leiðrétt við niðurfærslu samkvæmt 110 prósenta leið vegna lausafjáreigna fá mun meira en viðskiptavinir bankanna að þessu sinni, upp að fjögurra milljóna króna hámarkinu. Þannig er í reynd það óréttlæti sem skapaðist við útfærslu 110 prósenta leiðarinnar jafnað út að einhverju marki að þessu sinni.
Skýrsla sérfræðingahóps um skuldaleiðréttinguna.
Spurt og svarað frá ríkisstjórninni vegna málsins.
Fá mest núna því þeir fengu minnst síðast
Þorbjörn Þórðarson skrifar
Mest lesið

Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið
Viðskipti innlent

Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu
Viðskipti innlent

Bjartara yfir við opnun markaða
Viðskipti erlent


Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna
Viðskipti innlent

Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent

Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson
Viðskipti innlent

Hækkanir í Kauphöllinni á ný
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag
Viðskipti innlent