Flokkunarmóttaka að tæknivæðast 19. janúar 2013 06:00 Ný endurvinnsla að Dalvegi er búin fullkomnum tækjum. fréttablaðið/stefán
Einnota drykkjarumbúðir sem innihalda ekki mjólk eru samkvæmt lögum í skilakerfi og fæst endurgreiðsla við skil þeirra að upphæð 14 kr. Víða á stöðvum Endurvinnslunnar er hægt að leggja andvirði söfnunar beint inn á ýmis góðgerðarmál. Eins og margir viðskiptavinir hafa tekið eftir er í auknum mæli verið að vélvæða móttöku þessara umbúða og þurfa viðskiptavinir því ekki lengur að flokka og telja heilar umbúðir sem skilað er á tæknivæddar stöðvar. Árlega drekka Íslendingar úr um 115 milljónum drykkjarumbúða og skila til baka um 100 milljónum umbúða sem er mjög góður árangur á alþjóðlegan mælikvarða. Þetta eru umbúðir sem á hverju ári skapa um 250 milljónir í útflutningsverðmæti í stað þess að lenda á sorphaugum landsmanna. Ef öllum flöskum sem Endurvinnslan hefur safnað frá árinu 1989 yrði raðað saman myndi sú röð ná til tunglsins. Við endurvinnslu einnar áldósar þarf einungis 5% af þeirri orku sem færi í frumvinnslu á áli. Plast í drykkjarflöskum er oftast úr PET-efni sem er endurunnið áfram í plastbakka, flíspeysur o.fl. Kostnaðarsamt er að taka við gleri og því hefur Endurvinnslan ekki tekið við öðru gleri en því sem tilheyrir skilakerfi drykkjarumbúða. Nánari upplýsingar er að finna á Endurvinnslan.is. Íslendingar eru duglegir að skila drykkjarumbúðum í endurvinnslu.
Mest lesið Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð Viðskipti innlent Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira